Atvinnulausum erlendum ríkisborgurum fjölgar á ný 13. október 2009 11:24
Eftir að hafa fækkað samfellt fimm mánuði í röð fjölgaði erlendum ríkisborgurum sem eru án atvinnu í september. Í lok september voru alls 1.717 erlendir ríkisborgarar án atvinnu sem jafngildir um 12,5% allra á atvinnuleysisskrá. Greining Íslandsbanka fjallar um nýjustu atvinnuleysistölurnar í Morgunkorni sínu. Þar segir að í lok ágúst voru erlendir ríkisborgarar 1.652 eða 11,5% af heildarfjölda á atvinnuleysisskrá. Má reikna með að atvinnuleysi meðal erlenda ríkisborgara hér á landi hafi náð toppi í mars síðastliðnum en þá voru þeir 2.146 talsins. Eftir að bankahrunið skall á og hrinur hópuppsagna tóku við hjá fyrirtækjum voru erlendir ríkisborgarar meðal þeirra fyrstu sem misstu vinnuna en stór hluti þeirra var starfandi í þeim iðnaði sem fundið hefur einna harðast fyrir kreppunni, þ.e. byggingariðnaði. Líklegt er að atvinnuleysi almennt hafi nú náð lágmarki sínu á árinu og taki að aukast á nýjan leik eftir því sem líður á veturinn vegna bæði árstíðarsveiflu og vaxandi slaka í hagkerfinu. Horfur er á að atvinnuástandið versni nú strax í október og áætlar vinnumálastofnun að atvinnuleysi komi til með að verða á bilinu 7,3%-7,8% í þeim mánuði. Greiningin segir að því megi reikna með að atvinnuleysi komi til með að hækka nokkuð hratt á næstu mánuðum og telur að það nái hámarki í mars/apríl 2010. Búast má við að tala atvinnulausra gæti orðið á bilinu 18-20 þúsund þegar verst lætur í vetur og að atvinnuleysi verði á bilinu 10%-12%. Þess má geta að í mars síðastliðnum voru alls 16.822 skráðir á atvinnuleysisskrá sem er meira en nokkru sinni fyrr. Þá mældist atvinnuleysið um 9,1%. Reikna má með því að ekki taki að draga úr atvinnuleysinu svo neinu nemi fyrr en á árinu 2011.
Mest lesið „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Sjá meira