Viðskipti innlent

Dagvöruverslun dróst saman um 4,4% í september

Velta í dagvöruverslun dróst saman um 4,3% á föstu verðlagi í september miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 13,3% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu dagvöruverslana í september 4,4% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hækkaði um 18,4% á síðastliðnum 12 mánuðum.

Þetta kemur fram í frétt frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Þar segir að sala áfengis minnkaði um 11,5% í september miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi og jókst um 20,3% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í september 14% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 36% hærra í september síðastliðnum en í sama mánuð í fyrra.

Fataverslun var 0,3% minni í september miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi en jókst um 23,7% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Í september dróst fataverslun saman um 17,6% frá mánuðinum á undan á föstu verðlagi. Verð á fötum var 24% hærra í september síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra.

Velta skóverslunar jókst um 0,9% í september á föstu verðlagi og um 23,7% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Verð á skóm hækkaði í september um 22,6% frá september í fyrra.

Velta húsgagnaverslana var 36,2% minni í september en í sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og 24,9% minni á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum var 17,8% hærra í september síðastliðnum miðaða við sama mánuð í fyrra.

Sala á raftækjum í ágúst dróst saman um 31,2% á föstu verðlagi frá sama mánuði í fyrra og um 0,3% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Á milli mánaðanna ágúst og september minnkaði raftækjasala um 16,1% á föstu verðlagi.

Töluverður samdráttur er enn í raunveltu smásöluverslunar á milli ára sem kemur sérstaklega fram í minni kaupum á dýrum og varanlegum vörutegundum.

Mestur samdráttur á milli ára er enn í húsgagnaverslun og raftækjaverslun eins og undanfarna mánuði. Hins vegar var sáralítill munur á veltu fata- og skóverslunar í september í samanburði við sama mánuð í fyrra að raunvirði.

Venjulega dregst velta þessara verslana saman í september, en núna jókst velta skóverslunar frá ágústmánuði um 3,8% en dróst saman í fataverslun um 17,6%. Verðhækkanir á fötum og skóm voru svipaðar á milli ára, 24% verðhækkun á fötum og 22,6% á skóm, samkvæmt verðmælingu Hagstofunnar.

Ekki þarf að fjölyrða um ástæður samdráttar í einkaneyslu og um leið veltu verslunar. En samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar var kaupmáttur launa 7,8% minni í ágúst síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Þar kemur einnig fram að innlend greiðslukortavelta hafi dregist saman um 17,9% að raunvirði í janúar til ágúst á þessu ári miðað við sama tímabil í fyrra.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×