Aflaverðmætið jókst um 8,4 milljarða milli ára 29. september 2009 09:05
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 54 milljörðum króna á fyrri helming ársins 2009, samanborið við rúmlega 45 milljarða yfir sama tímabil 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um 8,4 milljarða eða 18,6 % á milli ára. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflaverðmæti botnfisks var í lok júní orðið 40 milljarðar á árinu sem er aukning um 15,1% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 35 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 19 milljarðar og jókst um 5,5% frá árinu 2008. Aflaverðmæti ýsu nam um 8 milljörðum og stóð nokkurn veginn í stað milli ára. Verðmæti karfaaflans nam rúmum 5 milljörðum, sem er 55% aukning frá fyrstu sex mánuðum ársins 2008, og verðmæti ufsaaflans jókst um 13,6% milli ára í tæpa 3 milljarða króna. Verðmæti annars botnfisksafla jókst í heild um 36,5% miðað við fyrstu sex mánuði ársins 2008. Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 5 milljörðum króna í janúar til júní 2009, sem er 69% aukning frá fyrra ári. Verðmæti uppsjávarafla jókst um 16% milli ára og nam tæpum 8 milljörðum króna á fyrri hluta ársins. Munar þar mestu um verðmæti síldarafla sem nam 2,6 milljörðum samanborið við 1,1 milljarð í fyrra og makríl að verðmæti 2,2 milljarðar samanborið við 1,1 milljarð 2008. Loðnuafli dróst saman um 82% og var aflaverðmætið 341 milljónir króna samanborið við 1,8 milljarða árið áður. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam um 21 milljarði króna fyrstu sex mánuði ársins og jókst um 13,3% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 4,7% milli ára og nam tæpum 8 milljörðum króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam tæpum 17 milljörðum, samanborið við 13 milljarða árið áður. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam um 6,7 milljörðum, sem er 21,1% aukning miðað við tímabilið janúar til júní 2008.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Sjá meira