HS Orka hefur náð samningum við erlenda lánadrottna 24. nóvember 2009 09:00
HS Orka hf hefur nú náð samkomulagi við lánadrottna sína um breytingar á skilmálum erlendra lána eftir að fyrir lá að félagið uppfyllti ekki kröfur um eiginfjárhlutfall og rekstrarhlutföll í kjölfar falls íslensku krónunnar.Í tilkynningu til kauphallarinnar segir að þegar fyrir lá í upphafi þessa árs að HS Orka hf stóð ekki lengur við kröfur í lánasamningum um eiginfjárhlutfall eftir að krónan féll, var þess sérstaklega getið í ársreikningi félagsins og í áritun endurskoðenda.Félagið hóf strax samningaviðræður við erlenda lánveitendur sína, Norræna fjárfestingarbankann (NIB), Evrópska fjárfestingarbankann (EIB) og Evrópska þróunarbankann (CEB). Þessar viðræður hafa leitt það af sér að nú hefur verið undirritað samkomulag við banka félagsins.Samkomulagið felur í meginatriðum í sér að lánveitendur HS Orku hf. auka svigrúm félagsins til frávika frá fjárhagskvöðum ásamt því að samþykkja uppskiptingu Hitaveitu Suðursnesja í HS Orku hf og HS Veitur hf.Þess í stað veitir HS Orka hf. beinar veðtryggingar vegna lána í eignum félagsins, í stað óbeinna veða áður, auk þess sem bankarnir hækka vaxtaálag sitt tímabundið. Þá er staðfest að bankarnir viðurkenna HS Orku hf. sem nýjan skuldara í stað Hitaveitu Suðurnesja hf. í kjölfar uppskiptingar fyrirtækisins.„Það er afar ánægjulegt og mikilvægt fyrir félagið að hafa náð þessu samkomulagi við lánveitendur sína," segir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf. Júlíus bætir við „að með þessu samkomulagi er þeirri fjárhagslegu óvissu eytt, sem félagið hefur búið við á árinu."Júlíus segir jafnframt að 9 mánaða uppgjör félagsins sýni fram á bata á hlutföllum í takt við áætlanir félagsins en eiginfjárhlutfall þess var 23% í lok september í stað 16,3% í ársbyrjun.„Með þessu samkomulagi skapast svigrúm til að HS Orka hf geti sótt sér aukið fjármagn til fyrirhugaðra framkvæmda við uppbyggingu gufuaflsvirkjana hér á Suðurnesjum," segir Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður HS Orku hf.
Mest lesið Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Verslunarrisar mættir til leiks Viðskipti innlent Vill að Alþingi skipi rannsóknarnefnd vegna forsætisráðherra Viðskipti innlent Launin reyndust tæp hálf milljón á mánuði Viðskipti innlent 60 kílómetrar af Glamour komið í verslanir Viðskipti innlent Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Áhersla á sjálfbærni í nýrri leigu og fagverslun BYKO Samstarf Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Vara við eggjum í kleinuhringjum Neytendur Fleiri fréttir Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Sjá meira