Lokið við bráðabirgðaverðmat eigna 17. apríl 2009 03:00 í apríllok funda samningsaðilar vegna eignaskipta gömlu og nýju bankanna um tæknilega þætti í nýjum skýrslum.Fréttablaðið/Samsett mynd
Fullnaðarútgáfa úttektar á verðmati eigna sem fluttar voru úr gömlu bönkunum í þá nýju og úttekt á framkvæmd á vinnslu verðmats eigna bankanna liggur væntanlega fyrir í næstu viku, samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu (FME). „Deloitte LLP hefur lokið bráðabirgðaverðmati þeirra eigna sem fluttar voru út úr gömlu bönkunum til að mynda efnahag Nýja Kaupþings banka, NBI og Íslandsbanka. Samhliða vinnslu verðmatsins hefur Oliver Wyman yfirfarið framkvæmd þess fyrir hvern banka,“ segir í tilkynningu FME, en skýrslurnar skiptast í tvo hluta. „Í fyrri hluta er lýst aðferðafræði og forsendum og birtar niðurstöður sem lúta að því að verðmæti eignanna sem fluttar voru úr bönkunum liggi á tilteknu verðbili. Í síðari hluta er að finna mat á einstökum eignum. Þessi hluti hefur að geyma viðkvæmar upplýsingar og er bundinn ríkum trúnaði.“ FME hefur jafnframt birt áætlun um kynningu á skýrslunum og segir nauðsynlegt að upplýsingar um verðmat séu fyrst birtar samningsaðilum og þeim gefinn kostur á að taka afstöðu til þeirra. „Þegar samningar hafa náðst verður samantekt á efni skýrslnanna gerð opinber. Í skýrslunum er meðal annars að finna viðkvæmar og verðmyndandi upplýsingar og því er ekki unnt að birta þær opinberlega að svo stöddu,“ segir á vef FME.
Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira