Spáir að tólf mánaða verðbólga lækki milli mánaða 17. ágúst 2009 17:06
Samkvæmt spá Greiningardeildar Kaupþings mun vísitala neysluverðs hækka um 0,6% milli mánaða í ágúst. Sem fyrr liggur þó risavaxin óvissa í húsnæðislið vísitölunnar sem gæti breytt töluvert heildarniðurstöðunni fyrir vísitölu neysluverðs. Gangi spáin eftir verður 12 mánaða verðbólga í ágúst 10,8% samanborið við 11,1% verðbólgu í júlí. Í spánni er ennfremur gert ráð fyrir talsverðri hækkun vísitölu neysluverðs í september, eða 0,9% miðað við að húsnæðisliðurinn verði svo gott sem óbreyttur.Útsölulok hækka verðlag og minnkandi gengisáhrif Að venju mun verðlag hækka í ágúst mánuði vegna þess að útsölum er í mörgum tilfellum lokið. Í ágúst 2008 hækkuðu föt og skór vísitöluna um 0,2% og mánuðinn á eftir hækkaði liðurinn vísitöluna um hálft prósent. Greiningardeildin gerir ráð fyrir að föt og skór muni hafa álíka áhrif á neysluverð og á sama tíma í fyrra. Gengi krónunnar hefur sáralítið breyst síðustu tvo mánuði. Engu að síður er krónan talsvert veikari en hún var á fyrstu mánuðum þessa árs. Veikara gengi mun því áfram koma fram í hinum ýmsu liðum vísitölunnar á allra næstu mánuðum, en sterkustu áhrifin eru í innfluttum vörum.Óvissa um húsnæðisliðinn Greiningardeildin gerir ráð fyrir að áhrif húsnæðisverðs á vísitölu neysluverðs verði í kringum núllið en deildin vekur athygli á því að þetta er lang ótryggasta forsendan í spánni. Síðustu mánuði hafa sveiflur húsnæðisliðarins haft mjög mikil áhrif á mánaðarleg gildi verðbólgunnar. Undanfarna mánuði hefur lítið mátt reiða sig á fasteignavísitölu Fasteignaskrár til að spá fyrir um húsnæðislið vísitölu neysluverðs. Hluti af skýringunni er ólík aðferðafræði hjá Hagstofunni og Fasteignaskrá sem og breytingar á aðferðafræði.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira