Frétt á Bloomberg olli fjaðrafoki hjá Kaupþingi 9. september 2009 12:56
Frétt á Blomberg fréttaveitunni í gærdag um að aðeins 20% fengjust upp í kröfur í þrotabú Kaupþings olli nokkru fjaðrafoki meðal kröfuhafanna. Sökum þessa setti skilanefnd Kaupþings tilkynningu inn á vefsíðu sína þar sem segir m.a. að enn sé óljóst hve mikið fæst upp í kröfurnar. Fréttin á Bloomberg, skrifuð af Ómari R. Valdimarssyni, hefur nú verið leiðrétt en í henni var stuðst við tölur frá því í nóvember í fyrra skömmu eftir hrun bankans. Síðan þá hefur mikið verk verið unnið við að hámarka andvirði eigna Kaupþings og ljóst að endurheimturnar verða töluvert hærri en fréttin á Bloomberg gaf til kynna. Í tilkynningunni frá skilanefndinni segir m.a.: „Á þessu stigi er ómögulegt að áætla nákvæmlega hvers virði kröfurnar gegn bankanum eru og andvirði endurheimta af eignum bankans. Markmið skilanefndarinnar hefur verið að verja eignirnar og hámarka endurheimtur þeirra fyrir kröfuhafanna." Fram kemur að nýjustu tölur um eignir bankans hafi verið settar fram í febrúar s.l. og hafi það mat byggt á áætlun um sölu þeirra þann 15. nóvember í fyrra. „Þetta mat tekur ekki mið af núverandi áætlun skilanefndar að styðja við og vernda eignirnar. Engin tilraun var gerð á þeim tíma til að meta framtíðar virði eignanna né hve mikið kröfuhafar fengju í sinn hlut." Reikna má með að yfir 30.000 kröfuhafar muni gera kröfur í þrotabú Kaupþings enda er gjaldþrotið eitt það stærsta í heimssögunni. Kröfulýsingarfresti lýkur um næstu áramót.
Mest lesið Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Fleiri fréttir Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Sjá meira