Þrjú dótturfélög Landic Property í gjaldþrotaskipti 15. júní 2009 14:24
Stjórnir þriggja danskra dótturfélaga Landic Property hf., Keops Development A/S, Landic Property A/S og Landic Investment A/S, hafa í dag lagt fram beiðni um gjaldþrotaskipti hjá dómstólum í Kaupmannahöfn. Starfsemi þeirra félaga sem eiga og reka fasteignasöfn á Íslandi, Svíþjóð og í Danmörku er óbreytt og leigutakar félagsins verða ekki fyrir áhrifum. Fjárhagsleg endurskipulagning starfsemi Landic Property á Íslandi heldur áfram skv. áætlun. Í tilkynningu segir að síðastliðna tvo mánuði hefur verið unnið að frágangi á sölu fjölda erlendra dótturfélaga Landic Property, sem tilkynnt var þann 16. apríl sl. Sala fasteignasafns Landic Property í Finnlandi er frágengin, og áfram verður unnið að sölu á erlendu fasteignasafni Landic Property, að undanskildum ofangreindum þremur félögum, þar sem endurskipulagning og sala þeirra félaga gekk ekki eftir. Fasteignarekstur Landic Property á Íslandi gengur hins vegar samkvæmt áætlun og fjárhagsleg endurskipulagning móðurfélagsins, Landic Property hf., sem unnin er í nánu samráði við helstu lánardrottna, miðar vel áfram. Eins og áður hefur komið fram er eigið fé Landic Property hf. neikvætt og miða áætlanir um endurskipulagningu félagsins að því að kröfuhafar eignist allt hlutafé í félaginu. „Það eru vissulega vonbrigði að ekki hafi tekist að bjarga þessum dönsku dótturfélögum frá gjaldþroti. Söluferli annarra erlendra eigna Landic Property heldur hins vegar áfram, sem og fjárhagsleg endurskipulagning móðurfélagsins í samstarfi við lánardrottna," segir Viðar Þorkelsson, forstjóri Landic Property. „Landic Property mun í framtíðinni einbeita sér að rekstri fasteigna á Íslandi þar sem dótturfélag þess Landic Ísland er stærsta fasteignafélag landsins, með yfir 120 fasteignir sem samtals eru um 400 þúsund fermetrar. Sá rekstur gengur vel og á því munum við byggja".
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira