Skuldabréf gamla Landsbankans lækka eftir samkomulag 15. október 2009 00:01 Landsbankinn Fjárfestar telja nokkra áhættu felast í kaupum á skuldabréfum Landsbankans. Áttatíu og fimm ára gamalt bréf bankans var boðið til sölu á erlendum skuldabréfamarkaði í vikunni.
Virði skuldabréfa gamla Landsbankans hefur lækkað eftir að íslensk stjórnvöld, skilanefnd Landsbankans og Nýi Landsbankinn skrifuðu undir samkomulag á mánudag um að tryggja að um níutíu prósent fáist upp í forgangskröfur gamla bankans. Kröfur vegna Icesave eru fremstar í röðinni og bera aðrir kröfuhafar minna úr býtum. Líkt og áður hefur verið greint frá er líflegur markaður með skuldabréf Glitnis og Kaupþings og hafa áhættufjárfestar hagnast mjög á viðskiptunum. Lítil velta er með skuldabréf Landsbankans. Skuldabréf Landsbankans urðu næsta verðlaus eftir þrot hans fyrir ári. Fyrir um hálfum mánuði bundu fjárfestar vonir við að á bilinu fimm til sjö prósent af kröfum myndu skila sér. Eftir því sem næst verður komist benda nýjustu tölur til að heimtur hafi lækkað niður í rúm fjögur prósent og ekki er útilokað að þær lækki frekar. Skuldabréf Glitnis og Kaupþings hafa hækkað lítillega á sama tíma en spákaupmenn búast við á bilinu 23 til 25 prósenta heimtum. Helst eru það bandarískir spákaupmenn sem keypt hafa bréfin. Ekki er útilokað að ástæðan fyrir því sé sú að þeir hyggist geyma hagnað á milli uppgjörstímabila.jonab@frettabladid.is
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira