Verðbólga ekki lægri í ár 30. apríl 2009 05:00 Snorri Jakobsson
Verðbólga mælist nú 11,9 prósent og hefur hún ekki verið lægri síðan í apríl í fyrra. Verðbólgan gæti náð verðbólgumarkmiðum Seðlabankans um áramót, að mati sérfræðings IFS Greiningar. „Þetta er lítillega yfir væntingum,“ segir Snorri Jakobsson, sérfræðingur hjá IFS Greiningar um verðbólguna í þessum mánuði. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,45 prósent á milli mánaða í apríl og fór verðbólgan við það úr 15,2 prósentum í 11,9 prósent, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Spá IFS Greiningar gerði ráð fyrir hækkun upp á 0,1 prósent og 11,5 prósenta verðbólgu. Snorri segir að frávikið frá spá IFS skýrist af meiri hækkun fasteignaverðs. Hann segir í raun tvö fasteignaverð í gangi; eitt sem Fasteignaskrá ríkisins taki saman og annað hjá Hagstofunni, sem leiðrétti vegna makaskiptasamninga. Snorri bendir á að íbúðaverð í makaskiptasamningum sé oftast töluvert hærra en raunverulegt fasteignaverð þar sem það borgi sig fyrir báða aðila að verðið sé sem hæst. Það geti skekkt verðbólgutölurnar og dregið úr hjöðnun verðbólgu ef ekki er leiðrétt fyrir makaskiptum. Snorri bendir á að krónan vegi þó þyngra. „Ef hún verður til friðs og helst stöðug þá fellur verðbólgan hratt,“ segir hann. Spá IFS Greiningar gerir ráð fyrir að mjög hratt dragi úr verðbólgu allt fram til loka næsta árs eftir snarpt verðbólguskot í ársbyrjun. Gangi spáin eftir verður verðbólga komin niður að 2,5 prósenta verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Gangi það eftir hefur verðbólga ekki verið lægri síðan í mars 2004. jonab@markadurinn.is
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira