Viðskipti innlent

Breytt skattlagning gæti kallað á skerðingu

Benedikt Jóhannesson
Benedikt Jóhannesson

Engu breytir fyrir launþega hvort greiðslur í lífeyrissjóð eru skattlagðar við innlögn eða útgreiðslu. Leiðin, sem er tillaga þingflokks Sjálfstæðisflokks að leið til að auka tekjur ríkisins, hefur hins vegar bæði í för með sér kosti og galla, líkt og fram kemur í úttekt Benedikts Jóhannessonar tryggingastærðfræðings í efnahags­ritinu Vísbendingu, sem hann bæði ritstýrir og gefur út.

Áætlað hefur verið að tekjuaukning ríkissjóðs við breytinguna gæti numið fjörutíu milljörðum króna og segir Benedikt helsta kostinn fyrir launþega vera að skattheimtan sé sársaukalaus nú. „Að vísu flækir dæmið að breytingar geta orðið á skattkerfinu, en eins og nú horfir fer skattprósenta væntanlega ekki lækkandi á næstunni,“ segir í Vísbendingu.

Einnig flækir málið að búa þyrfti til tvöfalt lífeyriskerfi, þannig að hætt yrði að greiða í það fyrra um leið og iðgjöld yrðu skattlögð við innlögn. Þá er vísað til útreikninga um að með tilfærslunni þurfi síðar að finna aðra skattstofna eða bregðast við með einhverjum hætti til að taka á þeirri skerðingu skattstofna sem á sér stað þegar greiðslur hefjast úr lífeyrissjóðunum þar sem skattur hefur þegar verið innheimtur.

Þá er bent á að lífeyrissjóðirnir komi til með að hafa minna til að fjárfesta með og þar með aukist mismunun í lífeyrissjóðakerfinu, því réttindi opinberra starfsmanna séu tryggð, hvernig sem árar í ávöxtun sjóða þeirra, meðan aðrið sjóðir þurfi að skerða réttindi ef illa fer. Aukinheldur minnki möguleikar sjóðanna til að taka þátt í atvinnulífinu með því að fjárráð þeirra verða minni. Áhrif breytingarinnar gætu líka komið fram strax í að sjóðir sem ekki ættu fyrir skuldbindingum í gamla kerfinu þyrftu að skerða réttindi nú þegar.

Benedikt segir ljóst að hugmyndin hafi bæði kosti og galla, en kreppuástandið hljóti að leiða til þess að skapandi hugmyndir sem þessi séu grandskoðaðar. „Ekkert bendir til þess að þessi hugmynd sé sett fram af loddarahætti eða sem lýðskrum,“ skrifar Benedikt. - óká






Fleiri fréttir

Sjá meira


×