Heildarútlán ÍLS jukust um 84 prósent milli mánaða 6. október 2009 09:47
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs ÍLS) rúmlega 2,9 milljörðum króna í september. Þar af voru rúmir 1,8 milljarðar vegna almennra lána og tæpir 1,1 milljarður vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins jukust því um tæp 84% frá fyrra mánuði sem má að mestu rekja til aukningar í leiguíbúðalánum frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu ÍLS fyrir september. Þar segir að meðalútlán almennra lána voru um 10 milljónir króna í september sem er um 2% aukning frá fyrri mánuði. Heildarútlán sjóðsins námu rúmum 6,9 milljörðum á þriðja ársfjórðungi sem er um 15% minna en á öðrum ársfjórðungi og um 35% minna en á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Heildarútlán sjóðsins nema því rúmum 24,4 milljörðum það sem af er árinu 2009 en það eru um 51% minni útlán en á sama tímabili árið 2008. Á þriðja ársfjórðungi bárust 658 umsóknir vegna greiðsluerfiðleika sem er um 35% færri umsóknir en á öðrum ársfjórðungi. Á fyrstu níu mánuðum ársins hafa því borist 2485 umsóknir sem eru 539% fleiri umsóknir en á sama tímabili ársins 2008. Úrræði vegna greiðsluvanda eru samningar, skuldbreyting vanskila, frestun á greiðslum, lenging lána og greiðslujöfnun. Frá því sjóðurinn fór að bjóða upp á greiðslujöfnun fasteignaveðlána hafa verið afgreiddar 506 umsóknir. Heildarvelta íbúðabréfa í september nam tæpum 83 milljörðum sem er 17% minni velta en í fyrra mánuði. Heildarvelta bréfanna nemur rúmum 712 milljörðum það sem af er árinu 2009. Ávöxtunarkrafa Íbúðabréfa lækkaði nokkuð í september eða um 15 til 24 punkta eftir flokkum. Greiðslur Íbúðalánasjóðs námu um 6,6 milljörðum króna í september og voru afborganir íbúðabréfa stærsti hluti þeirra. Uppgreiðslur lána Íbúðalánasjóðs í september námu um 875 milljónum króna. Heildaruppgreiðslur allra lána Íbúðalánasjóðs eru því um 6,5 milljarðar króna sem af er árinu 2009.
Mest lesið Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira