Viðskipti innlent

Fjórðungur fyrirtækja ætlar að fækka starfsmönnum

Sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum Samtaka atvinnulífsins (SA) hyggjast ekki gera breytingar á starfsmannafjölda á næstu sex mánuðum, 14% áforma fjölgun starfsmanna en 26% hyggjast fækka þeim. Af þeim sem hyggjast fjölga starfsmönnum ætla tveir þriðju að fjölga um innan við fimm starfsmenn.

Þetta kemur fram á vefsíðu samtakanna. Þar segir að þó finnst dæmi um áformaða fjölgun um yfir 50 starfsmenn. Í þeim hópi sem hyggst fækka starfsmönnum ætla 70% að fækka um innan við fimm starfsmenn en fimmtungur þeirra hyggjast fækka um meira en 10, en það teljast hópuppsagnir. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á atvinnuhorfum meðal fyrirtækjanna.

Könnunin var rafræn og gerð meðal aðildarfyrirtækja SA dagana 7.-13. október 2009 en framkvæmd hennar var í höndum Outcome hugbúnaðar ehf. Markmiðið með könnuninni var að fá skýrari mynd af horfunum framundan í íslensku atvinnulífi.

Rúmur fjórðungur fyrirtækjanna, 27%, hafa brugðið á það ráð að breyta fullum störfum í hlutastörf á árinu 2009 til þess að forðast uppsagnir. Í sambærilegri könnun í febrúar síðastliðnum sögðust 18% fyrirtækjanna hafa gert það, þannig að notkun þessa úrræðis virðist hafa farið vaxandi. Fjórðungur, 25%, fyrirtækjanna hefur gripið til launalækkana á árinu til þess að tryggja áframhaldandi rekstur, en til samanburðar höfðu 18% gert það í könnuninni í febrúar.

Fyrirtækin í könnuninni endurspegla sjávarútveg, iðnað, byggingastarfsemi, veitur, verslun og samgöngur, hótel og veitingahús, fjármála- og tryggingafyrirtæki. Áætlað er að í þessum atvinnugreinum starfi um 87.000 manns um þessar mundir. Áformuð fjölgun starfsmanna hjá þeim fyrirtækjum í könnuninni sem hyggjast fjölga á næstu sex mánuðum er 1,2% af heildar starfsmannafjölda en áformuð fækkun nemur 3,5%.

Nettófækkun starfsmanna verður því 2,3% af starfsmannafjölda, eða sem samsvarar 2.000 manns, í þessum atvinnugreinum á næstu sex mánuðum. Launagreiðslur sem falla brott af þeim sökum nema um 10 milljörðum króna á ársgrundvelli.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×