Efnahagsáætlunin komin á sporið 4. nóvember 2009 06:00 Ólafur Ísleifsson
Tekið hefur verið fyrsta skrefið til að aflétta gjaldeyrishöftum sem ætlað er að halda bærilegum stöðugleika í gengi krónunnar. Stjórnvöld og AGS virðast telja gengið hafa náð jafnvægi á gengisvísitölunni 235 eða þar um bil. Höftin sýnast frekar en stýrivextirnir valda miklu um gengi krónunnar. Tengsl stýrivaxta við almenna bankavexti hafa rofnað og hafa háir stýrivextir ekki staðið í vegi fyrir því að viðskiptabankar hafa breytt vöxtum sínum í ýmsum atriðum. Við þær aðstæður sem hafa skapast í efnahagsmálum virðist sem stýrivextir Seðlabankans gegni óljósum tilgangi. Frá þessu er þó sú undantekning að dráttarvextir skulu lögum samkvæmt vera 7% yfir stýrivöxtum Seðlabankans. Þess vegna eru dráttarvextir nú 19%. Virðist sem stjórnvöld telji svo háa dráttarvextir hæfilega í landi þar sem stökkbreyttar skuldir ógna atvinnufyrirtækjum og heimilum sem virðist ekki ætlað að eiga möguleika að vinna sig út úr vanskilum. Dráttarvextir á lánum sem miðast við erlenda mynt fylgja stirðu austurþýsku kerfi með fimm ára viðmiðunum. Enginn vilji sýnist uppi af hálfu stjórnvalda um að hnika neinu í þessum efnum. Við þær aðstæður sem nú eru uppi verður ekki séð að nein skynsamleg ástæða sé til að halda stýrivöxtum Seðlabankans í 12%. Andstaða AGS við lækkun stýrivaxta hefur linast merkjanlega eftir fyrstu endurskoðun á efnahagsáætluninni. Fyrir liggur því að taka ákvörðun um umtalsverða lækkun stýrivaxta Seðlabankans. Efnahagsáætlun stjórnvalda í samvinnu við AGS er nú aftur komin á sporið eftir að hafa sætt töfum á vettvangi sjóðsins. Stjórnvöld hljóta að nýta ársfjórðungslegar endurskoðanir til að leitast við að tryggja að áætlunin taki á hverjum tíma mið af íslenskum hagsmunum og breytilegum ytri skilyrðum.
Mest lesið Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Hættu í megrun: „Það varð eiginlega allt vitlaust“ Atvinnulíf Segir Seðlabankann vera að falla í sömu gryfju og fyrir hrun Viðskipti innlent Stefán Atli gengur til liðs við Öryggismiðstöðina Viðskipti innlent Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Sjá meira