Evrubréf ríkissjóðs hafa hækkað um helming í verði 25. september 2009 12:20
Stærsti skuldabréfaflokkur ríkissjóðs sem útgefinn er í evrum hefur hækkað í verði á erlendum mörkuðum um helming (50%) frá byrjun marsmánaðar. Fyrir sjö mánuðum síðan fengust rúmlega 60 cent fyrir hverja evru nafnverðs þessara bréfa en í gær voru verðtilboð í þau nálægt 90 centum á evru nafnverðs. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þessi verðbreyting jafngildir því að ávöxtunarkrafa bréfanna á eftirmarkaði hafi lækkað úr ríflega 22% niður í 7,7%. Hér er um að ræða 1 milljarðs evra útgáfu með gjalddaga í desember 2011 sem gefin var út í lok ársins 2006 í því skyni að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. Til samanburðar má nefna að vextir í tveggja ára skiptasamningum í evrum, sem oft eru notaðir til að meta grunnvexti, eru nú u.þ.b. 1,65%. Þessi þróun evrubréfa ríkissjóðs er til marks um að nokkuð hafi miðað áleiðis með að endurverkja trú á íslensku efnahagslífi frá áramótum, þótt minnkandi áhættufælni á heimsvísu spili vitanlega einnig stórt hlutverk í henni. Þróun skuldatryggingarálags ríkissjóðs segir svipaða sögu, en 5 ára skuldatryggingarálag á ríkissjóð hefur lækkað úr 1050 punktum í upphafi mars niður í 365 punkta í gær. Þótt skuldatryggingarálag á heimsvísu hafi almennt farið lækkandi það sem af er ári er lækkunin óvíða jafn mikil hlutfallslega og í tilfelli Íslands. Rétt er að hafa í huga að skuldatryggingarálag á Ísland er enn langhæst meðal Vestur-Evrópuríkja. Írland kemur þar í öðru sæti með 135 punkta álag og Grikkland er í því þriðja með 123 punkta álag. Íslenska álagið er meira í ætt við álag á skuldatryggingar sumra A-Evrópuríkja á borð við Lettland og Litháen, sem og skuldatryggingarálag Kasakstans. Þessi lönd eiga öll sammerkt að auk þess að fá á sig harðan efnahagslegan skell hafa gjaldmiðlar þeirra og fjármálakerfi átt undir högg að sækja, þótt í tilfelli Eystrasaltsríkjanna hafi fastgengi mynta þeirra gagnvart evru raunar staðið af sér storminn enn sem komið er. Lettland hefur auk heldur þegið aðstoð AGS líkt og Ísland og glíma þeirra við að ná jafnvægi í opinberum fjármálum dregur úr möguleikum á að lina högg kreppunnar næsta kastið líkt og hér á landi.
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira