Kauphöllin áminnir og sektar fimm félög 28. maí 2009 15:59
Kauphöllin hefur í dag veitt fimm félögum opinberlega áminningu og sektað hvert þeirra um 1,5 milljónir kr. vegna þess að félögin birtu ekki ársreikninga sína fyrir 30. apríl .sl. Öll félögin beittu fyrir sig undanþáguákvæði til að komast hjá birtingu ársreikninga sinna. Félögin sem hér um ræðir eru Landic Property, Exista, Egla, Stoðir og Nýsir. Þau eru áminnt opinberlega og beitt févíti vegna atvika þar sem útgefandi er talinn hafa gerst brotlegur við ákvæði reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga í Kauphöllinni. Í niðurstöðu kauphallarinnar segir að þessir útgefendur hafi ákveðið að nýta sér undanþáguheimild í laga um verðbréfaviðskipti og varðar undanþágu frá birtingu fjárhagsupplýsinga. Þrátt fyrir að útgefandi hafi notfært sér undanþáguákvæðið í lögunum hvílir engu að síður upplýsingaskylda á honum samkvæmt öðrum ákvæðum laganna um verðbréfaviðskipti. Útgefandi verður ávallt að gæta reglna um birtingu innherjaupplýsinga og samsvarandi ákvæða í reglum Kauphallarinnar fyrir útgefendur fjármálagerninga. Telja verður að fjárhagsupplýsingar útgefanda séu meðal mikilvægustu upplýsinga um útgefanda fjármálagerninga sem teknir hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði, sem útgefanda er skylt að birta opinberlega. Engu skiptir þótt útgefandi hafi notfært sér áðurnefnda undanþágu, skylda hans til að birta innherjaupplýsingar er rík og fellur ekki niður þótt undanþágunni sé beitt, þrátt fyrir að útgefandinn sé í greiðsluerfiðleikum. Útgefandi verður einnig að hafa í huga að ársreikningur getur innihaldið innherjaupplýsingar sem rétt er að birta opinberlega lögum samkvæmt þótt útgefandanum sé ekki skylt að birta sjálfan ársreikninginn opinberlega.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Allir Bónus vanilludropar innkallaðir Neytendur Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira