Kæru SVÞ á hendur Ríkiskaupum var vísað frá 28. maí 2009 16:23
Kærunefnd útboðsmála hefur vísað frá kæru Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) á hendur Ríkiskaupum. Samkvæmt kærunefndinni heyrir framsal rammasamninga ekki undir lög um opinber innkaup eins og SVÞ héldu fram í kæru til kærunefndar útboðsmála. Í tilkynningu segir að þann 26. maí sl. kvað kærunefnd útboðsmála upp úrskurð í kærumáli sem SVÞ höfðu uppi fyrir hönd Egilsson/Office1 gagnvart Ríkiskaupum vegna framsals á rammasamningi um ritföng og skrifstofuvörur. Kærunefndin vísaði kröfum SVÞ frá með þeim rökum að í framhaldi af útboðsferli í samræmi við lög hafi verið undirritaðir rammasamningar og valdsvið nefndarinnar nái ekki til að úrskurða um neitt það er varðar framkvæmd samninganna eftir að þeir höfðu formlega komist á. SVÞ töldu í kæru sinni að um brot á lögum um opinber innkaup væri að ræða og samkvæmt þeim sé kaupanda, sem sé aðili að rammasamningi, óheimilt að bjóða út innkaup eða kaupa inn með öðrum hætti framhjá rammasamningi ef slíkur samningur tekur til innkaupanna og honum hafi hvorki verið sagt upp né rift. Kaupandi sé því bundinn af rammasamningi. Ríkiskaup áréttuðu fyrir kærunefnd að í öllum rammasamningum sé að finna ákvæði um framsal, þar á meðal í samningnum sem gerður var við Egilsson/Office1. Þeim hafi því mátt vera kunnugt um ákvæðið og hafi haft tækifæri til athugasemda þegar samningurinn var undirritaður eða innkaupin boðin út.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira