Minnkandi velta í smásöluverslun í ágúst 14. september 2009 08:01
Velta í dagvöruverslun dróst saman um 5,4% á föstu verðlagi í ágúst miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 11,2% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðarbundnum þáttum nam samdráttur í veltu dagvöruverslana í ágúst 3,3% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hækkaði um 17,5% á síðastliðnum 12 mánuðum. Þetta kemur fram í nýrri frétt frá Rannsóknarsetri versluanrinnar. Þar segir að sala áfengis minnkaði um 21,2% í ágúst miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi og jókst um 7,1% á breytilegu verðlagi. Verð á áfengi var 35,9% hærra í ágúst síðastliðnum en í sama mánuð í fyrra. Fataverslun var 11,6% minni í ágúst miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi en jókst um 16,1% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Í ágúst dróst fataverslun saman um 9% frá mánuðinum á undan á föstu verðlagi. Sumarútsölum virðist hafa vera lokið í ágúst því verð á fötum hækkaði um 6,1% frá mánuðinum á undan. Velta skóverslunar minnkaði um 6,6% í ágúst á föstu verðlagi og jókst um 11,1% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Verð á skóm hækkaði í ágúst um 4,6% á frá mánuðinum á undan. Velta húsgagnaverslana var 47,4% minni í ágúst en í sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og 37,2% minni á breytilegu verðlagi. Í ágúst jókst húsgagnaverslun frá mánuðinum á undan um 16,5% á föstu verðlagi. Verð á húsgögnum lækkaði í ágúst um 3% frá mánuðinum á undan. Sala á raftækjum í ágúst dróst saman um 20,2% á föstu verðlagi frá sama mánuði í fyrra og jókst um 11,4% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Á milli mánaðanna júlí og ágúst jókst raftækjasala um 42,7% á föstu verðlagi, líklega vegna útsala. Athyglisvert er að sala á raftækjum jókst um 42,7% í ágúst frá mánuðinum á undan á föstu verðlagi. Ástæðuna má að einhverju leyti rekja til útsala á raftækjum í ágúst og önnur skýring gæti verið sú að vaxtabætur voru greiddar út í byrjun mánaðarins. Aukningu í húsgagnasölu má einnig rekja útsala í ágúst. Þó freistandi væri að telja að þessi söluaukning á raftækjum og húsgögnum í ágúst gefi vísbendingu um aukna einkaneyslu er þó líklegra að um sé að ræða árstíðabundna sveiflu á þessum vörutegunum. Verslun með dagvöru, áfengi, föt og skó var áfram minni að magni til en í fyrra og árið þar áður eins og verið hefur flesta mánuði frá áramótum. Athyglisvert er að þó að verð á áfengi hafi hækkað um 9,4% í júní síðastliðnum virðist það ekki hafa haft teljandi áhrif á sölumagn áfengis þegar veltan hefur verið leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum eins og verslunarmannahelgi og fjölda söludaga.
Mest lesið SVEIT muni afhenda öll gögn og ekki greiða dagsektir Viðskipti innlent „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Viðskipti innlent SVEIT sleppi ekki við milljónasektir Viðskipti innlent Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? Viðskipti innlent Guðrún til Landsbankans Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Stefna á milljarð í veltu innan tveggja til þriggja ára Atvinnulíf Bætist í eigendahóp Strategíu Viðskipti innlent SVÓT viðtöl við alla starfsmenn: „Gerðu þetta bara!“ Atvinnulíf Lögreglustjórinn: Segir pabbabrandara, elskar krimmasögur og segir húmor vanmetinn Atvinnulíf Fleiri fréttir SVEIT muni afhenda öll gögn og ekki greiða dagsektir SVEIT sleppi ekki við milljónasektir Bætist í eigendahóp Strategíu Guðrún til Landsbankans Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Sjá meira