Afkoma ríkissjóðs versnar um tæpa 50 milljarða 28. maí 2009 12:25
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins 2009 liggur nú fyrir. Samkvæmt uppgjörinu er handbært fé frá rekstri neikvætt um 20,7 milljarða kr., sem er 49,1 milljarði kr. lakari útkoma heldur en á sama tímabili í fyrra. Tekjur reyndust um 9,5 milljarða kr. lægri en í fyrra á meðan að gjöldin hækka um 42,5 milljarða kr. Innheimtar tekjur ríkissjóðs á fyrstu fjórum mánuðum ársins voru rúmlega 151 milljarða kr. sem er tæplega 10 milljarða kr. lægri tekjur en á sama tíma árið 2008. Áætlun fjárlaga gerði ráð fyrir að innheimtar tekjur yrðu rúmlega 159 milljarða kr. og er frávikið því um 8 milljarða kr. Munar þar mest um lægri skatta á vöru og þjónustu en gert var ráð fyrir í áætluninni. Skatttekjur og tryggingagjöld námu tæplega 132 milljörðum kr. og drógust saman um 11,1% að nafnvirði og um 25,5% að raunvirði miðað við hækkun almenns verðlags. Aðeins hefur hægt á samdrættinum að raunvirði milli ára en hann er þó enn mikill eða um 25,8% þegar horft er á 4 mánaða meðaltal. Þá jukust aðrar rekstrartekjur ríkissjóðs umtalsvert á fyrstu fjórum mánuðum ársins frá sama tíma 2008 en þar munar mest um hærri vaxtatekjur. Greidd gjöld nema 167,7 milljarða kr. og hækka um 42,5 milljarð kr. frá fyrra ári, eða um 34%. Milli ára hækka útgjöld mest til almennrar opinberrar þjónustu eða um 17,2 milljarða kr., þar sem vaxtagreiðslur ríkissjóðs skýra 14,8 milljarða kr. Þá hækka útgjöld til almannatrygginga og velferðarmála um 12,8 milljarða kr. sem skýrist að mestu með 7,5 milljarða kr. hækkun útgjalda atvinnuleysistryggingasjóðs á milli ára og 2 milljarða kr. vegna útgjalda lífeyristrygginga sem hækka um 14,0%. Útgjöld til heilbrigðismála aukast um 6,4 milljarða kr. milli ára þar sem útgjöld til sjúkratrygginga skýra 3,8 milljarða kr. og útgjöld til Landspítala aukast um 989 milljónir kr. Útgjöld til efnahags- og atvinnumála aukast um 4,4 milljarða kr. og skýra framkvæmdir Vegagerðarinnar um 1,4 milljarð kr. Útgjöld til menntamála aukast um 1,8 milljarð kr. þar sem útgjöld til Lánasjóðs íslenskra námsmanna aukast um tæpar 500 milljónir kr. milli ára. Útgjöld til löggæslu, réttargæslu og öryggismála lækka um 963 milljónir kr. milli ára. Breytingar í öðrum málaflokkum eru minni en þær sem áður hafa verið taldar. Útgjöldin eru 2,1 milljarð kr. innan áætlunar og skýrist það að mestu af því að framkvæmdir í samgöngumálum og annarri fjárfestingu fara hægar af stað en gert hafði verið ráð fyrir.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira