Lánið til IG fimmtungur af eigin fé Landsbankans Þorbjörn Þórðarson skrifar 23. desember 2009 12:19
Fimmtungur af eigin fé Nýja Landsbankans fór í að lána fyrir kaupum á Icelandic Group. Lánið, sem bankinn lánaði skúffufélagi í eigu tveggja sjávarútvegsfyrirtækja, var upp á 26 milljarða króna. Það var veitt rétt eftir bankahrunið í október 2008 til að kaupa 98 prósent hlut í Icelandic Group. Um er að ræða lán til skúffufélagsins IG ehf. sem var stofnað eftir hrun og var í eigu útgerðarfyrirtækjanna Brims og Hraðrystistöðvar Gunnvarar á Ísafirði, en Kastljósið greindi frá láninu í gærkvöldi. Eftir kaupin á hlutnum í Icelandic Group, sem er útflutningsfyrirtæki á sviði sjávarafurða, var hlutafé fyrrverandi eigenda fært niður. Lánið frá Landsbankanum var notað til að lagfæra skuldastöðu Icelandic, en tugmilljarða skuldir félagsins voru færðar yfir til IG ehf. Lán upp á 26 milljarða króna er gífurlega hátt með hliðsjón af efnahagsreikningi Landsbankans. Eigið fé bankans er 150 milljarðar króna, miðað við hinn 8. október 2008. Því er lánið til skúffufélagsins alls sautján prósent af eigin fé bankans á þessum tíma. Samkvæmt heimildum fréttastofu var ákvörðun um veitingu lánsins tekin af Elínu Sigfúsdóttur, sem þá var nýtekin við sem bankastjóri Landsbankans, en með vitund og samþykki bráðabirgðastjórnar bankans, en formaður stjórnarinnar var Þórhallur Arason, skrifstofustjóri fárreiðuskrifstofu fjármálaráðuneytisins. Samkvæmt heimildum fréttastofu var eini tilgangur lánsins að vernda hagsmuni Landsbankans og tók bankinn veð í Icelandic með veitingu lánsins. Bankinn hafði í raun tvo kosti, að flytja skuldir Icelandic annað eða taka félagið yfir, en fyrirtækið var í miklum rekstrarvandræðum. Icelandic á fjölmörg dótturfélög erlendis og eftir að breska fjármálaráðuneytið frysti eignir Landsbankans hinn 8. október 2008 með sérstöku úrræði, Landbanki freezing order, voru eignir bankans erlendis í uppnámi. Því tók bankinn ekki þá áhættu að færa Icelandic Group í eignasafn sitt á þessum tíma.
Mest lesið Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Viðskipti innlent Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Viðskipti innlent Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Neytendur Fleiri fréttir Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Sjá meira