MP Banki á ekki Arkea eða Exeter 9. apríl 2009 15:47 Margeir Pétursson stjórnarformaður MP Banka.
Stjórnarformaður MP Banka, Margeir Pétursson, segir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér fyrir stuttu að bankinn tengist á engan hátt deilumáli vegna lánveitinga stjórnar Byrs vegna eigin stofnfjárbréfa. Hann segir ennfremur að MB Banki eigi ekki félögin Tæknisetur Arkea og Exeter Holdings en þau voru notuð til stofnfjárkaupanna. Yfirlýsing Margeirs er svohljóðandi: Fyrir hönd MP Banka mótmæli ég því að reynt sé að draga bankann inn í deilumál sem virðist komið upp vegna lánveitingar stjórnar BYRS vegna eigin stofnfjárbréfa. Þetta var gert í viðtali við tvo stofnfjáreigendur í BYR í Kastljósi Sjónvarpsins á þriðjudagskvöld og endurtekið á opnum fundi sömu aðila í Reykjavík í gær. Tekið skal fram að MP Banki var með fullnægjandi tryggingar vegna lána sem veitt voru á sínum tíma til kaupa á bréfum í BYR og fengust þau lán uppgerð í kjölfar veðkalla. Þar með lauk afskiptum MP Banka af þessu máli. MP Banki getur ekki tekið ábyrgð á því með hvaða hætti veðköllum var mætt, enda hefur bankinn ekkert um það að segja. Vegna yfirlýsingar sem birt hefur verið frá þremur stjórnarmönnum í BYR vegna þessa máls skal tekið fram að félögin Tæknisetur Arkea og Exeter Holdings eru MP Banka með öllu óviðkomandi. Staðhæfingar meirihluta stjórnar BYRS um eignarhald MP Banka á þessum félögum eru ósannar. MP Banki hefur ekki veitt þeim neinar ábyrgðir og hefur ekki á nokkurn hátt komið að lánaumsóknum þeirra í BYR. Aðaleigandi félaganna sagði sig úr stjórn MP Banka sumarið 2008 þegar hann stofnaði eigið verðbréfafyrirtæki, sem tengist MP Banka á engan hátt. Fh. MP Banka Margeir Pétursson, stjórnarformaður.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira