Kaupþing býður viðskiptavinum leiðréttingu á höfuðstólum lána 26. október 2009 19:15
Kaupþing mun í lok vikunnar kynna aðgerðir til aðstoðar við viðskiptavini sína sem eru með húsnæðislán, meðal annars afskriftir á höfuðstól. Þá mun einnig skýrast hvernig eignarhald á bankanum verður. Íslandsbanki var fyrstur til að bjóða viðskiptavinum sínum með húsnæðislán leiðréttingu á höfuðstólum lánanna. Leiðréttingin felst í 25% afskrift á höfuðstóli myntkörfulána og 10% á krónulánum. Tveimur dögum síðar tilkynnti félagsmálaráðherra um aðgerðir stjórnvalda. Beðið hefur verið eftir útspili Kaupþings þar sem Landsbankinn hefur gefið það út að ekki standi til að bjóða almennar leiðréttingar. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Kaupþing nú fullmótað sínar aðgerðir. Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri, vildi ekki gefa upplýsingar um í hverju aðgerðirnar eru fólgnar en samkvæmt heimildum mun verða gefinn meiri afsláttur á höfuðstól en hjá Íslandsbanka. Skilanefnd Kaupþings hefur farið yfir tillögurnar og er gert ráð fyrir því að þær verði kynntar í lok vikunnar. Þá mun einnig koma í ljós hvernig framtíðareignarhald á bankanum verður en skilanefndin hefur frest til 1. nóvember til að ákveða hvort hún eignist 87% hlut í nýja Kaupþingi. Skilanefndin mun funda um málið með kröfuhöfum í Lundúnum í vikunni.
Mest lesið Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Viðskipti innlent Valsstelpa í lyfjabyltingu: „Ég var alltaf svolítið skrýtin blanda“ Atvinnulíf Vélfag stefnir ríkinu Viðskipti innlent Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis Neytendur Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Viðskipti innlent Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Viðskipti innlent Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf Murdoch-feðgar verði meðal kaupenda TikTok Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Sjá meira