Þjóðarbúið getur staðið við Icesave skuldbindingarnar Gunnar Örn Jónsson skrifar 15. júlí 2009 13:38 „
Þjóðarbúið verður fyllilega fært um að standa undir Icesave samningnum," segir í mati Seðlabankans á erlendri skuldastöðu þjóðarbúsins. Þetta kom fram á fréttamannafundi sem haldinn var í hádeginu. Bankinn telur að með skynsamri hagstjórn og jákvæðum vöruskiptajöfnuði á næstu níu árum mun geta þjóðarbúsins til að standa við skuldbindingar sínar aukast ennfrekar. Seðlabankinn áætlar 75% endurheimtuhlutfall á eignum Landsbankans. Seðlabankinn býst við því að í lok árs 2015 verði búið að selja allar erlendar eignir gamla Landsbankans en þær koma til með að ganga upp í Icesave skuldbindinguna. Miðað við 75% endurheimtuhlutfall á eignunum er búist við að Icesave skuld íslenska ríkisins muni nema 342 milljörðum króna árið 2015. Þá fjárhæð á að greiða upp á átta árum sem samsvarar um 30 milljarða króna afborgun á ári, sé upphæðin núvirt frá árinu 2015 eins og Seðlabankinn gerir ráð fyrir í sínum útreikningum. Mat Seðlabankans verður að teljast í jákvæðari kantinum en til að mynda gerir matið ráð fyrir að gengi evru verði að meðaltali 158 krónur á lánstímanum, gengi hennar nú er 180 krónur. Auk þess kemur fram að Icesave skuldbindingin á þessu ári sé 575 milljarðar króna en flestir útreikningar benda til þess að hún sé í kringum 700 milljarðar króna. Einnig kemur fram í matinu að gjaldeyrisvarasjóður Seðlabankans muni aukast um ríflega 300 milljarða króna á næsta ári, án þess að færð séu rök fyrir þeim forsendum sem búa að baki útreikningunum. Fréttastofa á von á því að fá svör frá Seðlabankanum í dag varðandi þessi atriði og verður þeim komið á framfæri á Vísi um leið og þau berast.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira