Hafna milljarðakröfum baugsfjölskyldunnar í Baug Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 8. september 2009 18:53
Skiptastjórar þrotabús Baugs hafna rúmlega átta milljarða króna kröfu félaganna Gaums og Haga, en þau eru bæði í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu. Alls eru tæplega nítján prósent krafna samþykktar, en líklegt er að dómstólar muni úrskurða um hluta krafnanna. Alls nema kröfur í þrotabúið 319,4 milljörðum íslenskra króna. Skiptastjórar samþykkja rúma 59,6 milljarða eða um 18,6% af heildarkröfunum. Meðal þeirra krafna sem hafnað eru kröfur Gaums og Haga, en þessi félög í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu. Gaumur gerir kröfu upp á rúma 4,6 milljarða króna. Hagar gera kröfu upp á rúma 3,6 milljarða. Báðum kröfunum er hafnað en þær falla undir almennar kröfur. Stórum hluta af kröfum gömlu viðskiptabankanna er einnig hafnað. Glitnir gerir kröfu upp á rúma 46,8 milljarða. 6,3 milljarðar eru samþykktir. Landsbankinn gerir kröfu upp á samtals 96,7 milljarða en er hafnað. Þá er 26 milljarða króna kröfu Kaupþings einnig hafnað. Kröfur Landsbankans falla undir veðkröfur en bankinn hefur þegar gengið að veðum í BG Holding í Bretlandi. Áætla má að það muni taka mörg ár að meta verðmæti þeirra veða en það sama má segja um önnur veð. Þá gera fyrrverandi starfsmenn Baugs kröfur í þrotabúið upp á rúmar 65 milljónir, 31 milljón er samþykkt en neitað er að greiða fyrir iðgjöld, bifreiðastyrk, bónusgreiðslur og greiðslu húsaleigu. Samkvæmt heimildum fréttastofu er líklegt einhverjar af þeim kröfum sem nú er búið að hafna verði samþykktar eftir að skiptastjórar hafa fengið ítarlegri gögn frá kröfuhöfum. Það má þó búast við því að dómstólar muni úrskurða um hluta krafnanna takist ekki að jafna ágreining í framhaldi af skiptafundi í næstu viku.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira