Viðskipti innlent

Hollensk stjórnvöld ekki aðilar að Icesave málaferlum

Fjármálaráðherra hefur borist bréf frá Wouter Bos fjármálaráðherra Hollands. Í því kemur fram að hollensk stjórnvöld muni ekki eiga aðild að hugsanlegum málaferlum hollenskra innistæðueigenda á hendur íslenskum stjórnvöldum.

Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu segir að í bréfinu kemur ennfremur fram að Ísland sé virtur þátttakandi í alþjóðasamfélaginu og sem lýðræðis- og réttarríki búi Ísland við sjálfstætt og óháð réttarkerfi.

Á grundvelli þess telur fjármálaráðherra Hollands að hollenskir innistæðueigendur myndu fá réttláta málsmeðferð fyrir dómstólum á Íslandi. Afskipti hollenskra yfirvalda af slíkum málum væru því óþörf.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×