Eiginkona bankastjóra SPRON seldi stofnfjárbréf 8. september 2009 19:24 Eiginkona Guðmundar Haukssonar seldi stofnfjárbréf í SPRON árið 2007.
Hæstiréttur hefur skyldað formann skilanefndar SPRON til að upplýsa, að seljandi stofnfjárbréfa í sjóðnum í júlí 2007 er eiginkona þáverandi sparisjóðsstjóra, Guðmundar Haukssonar. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV. Þar kom ennfremur fram að bréfin voru seld eftir að stjórn SPRON ákvað að leita eftir skráningu sjóðsins sem hlutafélags. Guðmundur hafði á þeim tíma aðgang að trúnaðarupplýsingum um stöðu sjóðsins, sem kaupendur fengu ekki að vita um. Bréfin hröpuðu í verði við skráninguna og SPRON er nú í höndum skilanefndar. Í frétt RÚV kemur fram að Grímur Sigurðsson hæstaréttarlögmaður flutti í dag erindi á fundi Samtaka fjárfesta um mál sem hann flutti fyrir Davíð Heiðar Hansson, sem keypti stofnfjárbréfin. Eftir að gengi bréfanna hrundi vöknuðu grunsemdir um að ekki hefði allt verið með felldu, en stjórn SPRON ákvað 17. júlí 2007 að leita eftir skráningu. Jafnframt að leyfa skyldi viðskipti með bréfin í þrjár vikur eftir fundinn og að ekki skyldi upplýst um nýtt verðmat á sparisjóðnum. Ljóst var að þeir sem voru á umræddum stjórnarfundi bjuggu yfir mun meiri upplýsingum en aðrir. Hæstiréttur varð við kröfu Davíðs Heiðars og nú hefur verið upplýst að seljandinn var Áslaug Björg Viggósdóttir, eiginkona Guðmundar Haukssonar sparisjóðsstjóra, sem sat stjórnarfundinn og bjó yfir öllum upplýsingum. Lögmaður Davíðs Heiðars segir í viðtali við RÚV að ljóst sé að á það verði látið reyna fyrir Hæstarétti í að minnsta kosti tveimur málum, hvort stjórnarmennirnir og framkvæmdastjórinn, eða eiginkona hans, teljist hafa verið innherjar í þessum viðskiptum, en héraðsdómur hefur ekki viljað líta svo á.
Mest lesið Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Sjá meira