Afleiðingar gjaldeyrishafta verða lökustu lífskjör í Evrópu 3. apríl 2009 12:31
Lífskjör á Íslandi færast 60 ár aftur í tímann og verða með þeim lökustu í Evrópu ef ekki verður losað um gjaldeyrishöft og stýrivextir lækkaðir. Þetta kom fram í máli Margeirs Péturssonar, stjórnarformanns MP banka, í þættinum Markaðurinn með Birni Inga Hrafnssyni í gærkvöldi. Margeir sagði ljóst að krónan væri mun veikari en skráning Seðlabankans gæfi til kynna. Í raun væri hægt að tala um tvöfalt gengi. Á erlendum mörkuðum fást 200 til 230 krónur fyrir evruna, samkvæmt miðlunarkerfi Reuters, en hér landi kostar evran um 160 krónur. Tekið skal fram að viðskipti með krónur í miðlun Reuters eru stopul og lítil. Margeir segir nauðsynlegt væri fyrir þjóðina að lækka gengið og taka skellinn því að öðrum kosti væri ekki hægt að afnema gjaldeyrishöft og lækka stýrivexti. Áframhaldandi höft kæmu í veg fyrir endurreisn efnahagslífsins. „Hinsvegar ef að við erum bara með gjaldeyrishöft og falskt gengi og ofurháa vexti þá mun ríkja hér algjör stöðnun og deyfð og við verðum aftur með ein lökustu lífskjör í Evrópu eins og var fyrir 60 árum eða svo," segir Margeir. Vöruskipti í mars voru hagstæð um rúmlega 8 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Margeir sagði ljóst að afgangurinn þyrfti að vera meiri til að þjóðin gæti staðið við sínar skuldbindingar. Íslendingar þyrftu að sýna meiri aðlögunarhæfni.
Mest lesið Flugvirkjar fara í verkfall Viðskipti innlent Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Viðskipti innlent Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Viðskipti innlent Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til Atvinnulíf Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Viðskipti innlent Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Viðskipti innlent Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Viðskipti innlent Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Viðskipti innlent Novo hættir að vera Nordisk Viðskipti erlent Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent Fleiri fréttir Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Sjá meira