Yfirtökutilboð Lur Berri til hluthafa Alfesca samþykkt Gunnar Örn Jónsson skrifar 18. ágúst 2009 10:04
Yfirtökutilboð Lur Berri Iceland ehf. til hluthafa Alfesca hf. sem hófst 2. júlí 2009 lauk í gær. Yfirtökutilboðið var samþykkt af eigendum tæplega 1,4 milljón hluta í Alfesca hf. sem samsvarar 23,04% af útgefnu hlutafé félagsins. Lur Berri Iceland ehf. hefur því tryggt sér rúmlega 1,5 milljón hluti í Alfesca, eða sem samsvarar 25,96% af útgefnu hlutafé félagsins en Luc Berri átti við upphaf tilboðsins rúmlega 171 þúsund hluti eða 2,92% af útgefnu hlutafé félagsins. Fyrir tilboðið áttu samstarfsaðilar, sem samanstanda af Lur Berri Holding SAS, móðurfélagi Lur Berri Iceland, Kjalar Invest B.V., Alta Food Holding B.V., Kaupthing Singer & Friedlander Ltd. og tilteknir stjórnendur Alfesca hf., samanlagt 68,3% af útgefnu hlutafé Alfesca hf. Í kjölfar tilboðsins hafa samstarfsaðilarnir tryggt sér 91,34% af útgefnu hlutafé Alfesca hf. og munu fara með samsvarandi atkvæðisrétt þegar uppgjör á yfirtökutilboðinu hefur farið fram. Hluthafar sem samþykkt hafa tilboðið munu fá kaupverð hlutanna greitt eigi síðar en 24. ágúst 2009 í samræmi við skilmála tilboðsins, samhliða því að Lur Berri Iceland ehf. fær hlutina framselda. Í ljósi þess að samstarfsaðilarnir eiga sameiginlega meira en 90% útgefins hlutafjár og fara með meira en 90% atkvæðisréttar í Alfesca hf. hyggst Lur Berri Iceland ehf. nú leggja til við stjórn félagsins að hlutir í eigu annarra hluthafa Alfesca hf. verði innleystir. Ennfremur, líkt og kveðið er á um í tilboðsyfirlitinu sem dagsett er 25. júní 2009, munu samstarfsaðilarnir nú gera viðeigandi ráðstafanir svo hlutafé Alfesca hf. verði tekið úr viðskiptum af aðallista NASDAQ OMX Iceland.
Mest lesið Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Sjá meira