6 milljarða króna hagnaður hjá Landsvirkjun Gunnar Örn Jónsson skrifar 21. ágúst 2009 13:40
Samkvæmt rekstrarreikningi samstæðu Landsvirkjunar, skilaði samstæðan 47,3 milljóna dollara hagnaði fyrstu sex mánuði ársins 2009 eða um 6 milljörðum króna á núverandi gengi en starfrækslugjaldmiðill Landsvirkjunar er dollar. Landsvirkjun segir lausafjárstöðu fyrirtækisins góða og að fjármögnun sé tryggð út árið 2011. Handbært fé frá rekstri nam rúmlega 103,6 milljónum dollara og eigið fé í lok tímabilsins nam rúmlega 1,4 milljörðum dollara. Tekjur samstæðunnar námu 139 milljónum dollara á tímabilinu en voru 239,6 milljónir dollarar á sama tímabili á síðasta ári. Handbært fé frá rekstri nam rúmlega 103,6 milljónum dollara og eigið fé í lok tímabilsins nam rúmlega 1,4 milljörðum dollara. Á heimasíðu Landsvirkjunar kemur fram að minnkun tekna stafar einkum af lækkun álverðs, sem var mjög hátt á fyrri helmingi síðasta árs en álverð hefur lækkað mikið síðan þá. Einnig segir á heimasíðunni að lækkun krónunnar gagnvart dollar spili sinn þátt í minnkandi tekjum fyrirtækisins. Áhættuvarnir skiluðu 40 milljón dollara tekjum á fyrstu sex mánuðum ársins Tekjulækkunin hefur minni áhrif á afkomu fyrirtækisins en ætla mætti vegna áhættuvarna. Á tímabilinu janúar til júní 2009 fékk fyrirtækið greiddar 40 milljónir dollara frá erlendum fjármálastofnunum vegna álvarna en á sama tímabili 2008 greiddi fyrirtækið 35,7 milljónir dollara vegna áhættuvarnarsamninga.Lausafjárstaðan góð og fjármögnun tryggð út árið 2011 Lausafjárstaða Landsvirkjunar er góð en í lok júní nam handbært fé tæplega 129 milljónum dollara. Fyrirtækið hefur einnig aðgang að 308 milljóna dollara veltiláni sem fyrirtækið getur nýtt sér hvenær sem er. Sjóðsstaða að viðbættu ónotuðu bankaláni í lok júní nam því samtals 437 milljónum USD. Fyrirtækið hefur þannig tryggt sér fjármögnun út árið 2011. Til að tryggja enn frekar lausafjárstöðu Landsvirkjunar hafa fyrirtækið og ríkissjóður gert sérstakan viðbúnaðarsamning. Samningurinn er þannig að Seðlabankinn mun afhenda fyrirtækinu erlendan gjaldeyri og Landsvirkjun afhenda bankanum krónur eða skuldabréf í staðinn en þó því aðeins að fyrirtækið hafi áður fullreynt allar aðrar fjármögnunarleiðir. Fjárhæð samningsins er að hámarki 300 milljónir dollara og rennur hann út 1. júlí 2011. Í lok júní námu heildareignir fyrirtækisins tæplega 4,6 milljörðum dollara og eiginfjárhlutfall var 31,2%. Á heimasíðu Landsvirkjunar segir ennfremur að horfur um rekstur Landsvirkjunar séu allgóðar fyrir allt árið 2009, einkum ef álverð helst á því bili sem nú er, en álverð hefur hækkað verulega frá því að það fór lægst í mars síðastliðnum. Gengisþróun og þróun álverðs munu þó sem fyrr ráða miklu um afkomu ársins.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira