Eiga 154 milljarða í gjaldeyri 10. september 2009 04:00 Gjaldeyrir Sveiflur á gengi krónunnar hafa mikil áhrif á útreikninga á stöðu gjaldeyrisreikninga.
Innstæður íslenskra fyrirtækja á gjaldeyrisreikningum í íslenskum fjármálastofnunum voru heldur lægri í júní og júlí en þær voru síðustu tvo mánuði á undan. Innstæðurnar eru þó mun hærri en þær voru að meðaltali mánuðina fyrir hrun. Eins og fram kom í Fréttablaðinu nýverið telja sérfræðingar aukna uppsöfnun gjaldeyris á reikningum benda til þess að fyrirtæki skipti ekki gjaldeyri í krónur komist þau hjá því. Íslensk fyrirtæki áttu andvirði samtals 154,4 milljarða króna á gjaldeyrisreikningum í júlí og 146,8 milljarða í júní. Það er nokkru lægra en í maí, þegar þau áttu 173,5 milljarða, en talsvert meira en í febrúar, þegar eignin stóð í 126,9 milljörðum króna. Seðlabankinn hefur reiknað út stöðu á gjaldeyrisreikningum á föstu gengi janúar í 2007, til að kanna stöðuna á reikningunum án þess að sveiflur í gengi brengli myndina. Þar er þó ekki tekið tillit til vægi mismunandi gjaldmiðla heldur notast við gengisvísitölu. Á föstu gengi áttu fyrirtækin að meðaltali 100,5 milljarða á reikningunum í hverjum mánuði fyrstu sex mánuði ársins 2009. Á sama tímabili 2008 áttu þau 119,8 milljarða, og árið 2007 að meðaltali 114,9 milljarða. Sveiflur á gengi krónunnar hafa því veruleg áhrif á stöðu reikninganna. - bj
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira