Atvinnuleysi minnkar töluvert, var 7,7% í ágúst 10. september 2009 12:08
Skráð atvinnuleysi í ágúst 2009 var 7,7% eða að meðaltali 13.387 manns og minnkar atvinnuleysi um 2,7% að meðaltali frá júlí eða um 369 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1,2%, eða 2.136 manns. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um atvinnuleysið sem birt hefur verið á vefsíðu Vinnumálastofnunnar. Þar segir m.a. að þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 12.526, af þeim voru 861 í einhvers konar úrræðum á vegum Vinnumálastofnunar, auk þess sem mikill fjöldi fer í viðtöl hjá ráðgjöfum stofnunarinnar og á kynningarfundi. Atvinnuleysi er nú mest á Suðurnesjum 11,4% en minnst á Vestfjörðum 1,3%. Atvinnuleysi minnkaði á höfuðborgarsvæðinu um 2,5% en minnkar um 3,2% á landsbyggðinni. Atvinnuleysi minnkar um 3,6% meðal karla en minnkar um 1,5% meðal kvenna. Atvinnuleysið er 7,9% meðal karla og 7,5% meðal kvenna. Langtímaatvinnuleysi eykst og þeir sem verið hafa á skrá lengur en 6 mánuði voru 7.457 í lok ágúst en 7.184 í lok júlí og eru nú um 52% allra á atvinnuleysisskrá. Þeir sem verið hafa atvinnulausir í meira en ár voru 779 í lok ágúst en 629 í lok júlí. Atvinnulausum 16-24 ára hefur fækkað og voru 2.643 í lok ágúst en 3.151 í lok júlí eða um 18% allra atvinnulausra í ágúst. Yfirleitt batnar atvinnuástandið frá ágúst til september, m.a. vegna þess að skólafólk fer af vinnumarkaði. Erfitt er að áætla atvinnuleysi um þessar mundir vegna mikillar óvissu í efnahagslífinu, en líklegt er að atvinnuleysið í september 2009 minnki og verði á bilinu 7,3%-7,8%. Í fyrra var atvinnuleysið 1,3% í september.
Mest lesið Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Sjá meira