Efast um lögmæti stjórnarkjörs Byrs Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 15. maí 2009 18:45
Stjórnarmaður í Byr hótar að fara dómstólaleiðina fái hann ekki upplýsingar sem lögmaður sjóðsins hefur neitað að veita honum. Hann efast um að ný stjórn sjóðsins sé löglega kosin. Sveinn Margeirsson, nýkjörinn stjórnarmaður í Byr, setur spurningarmerki við umboð sem Kaupþing í Lúxemborg veitti fyrir aðalfundinn fyrr í vikunni. „Mér telst til að það hafi verið Ágúst Ármann, faðir Magnúsar Ármann," segir Sveinn. Hann dregur í efa að umboðið hafi verið löglegt. Ágúst Ármann er faðir Magnúsar Ármann sem var eigandi Imons sem var stærsti eigandi sjóðsins áður en Landsbankinn tók hlutinn yfir. Sveinn segir að ekki hafi verið miklir eignarhlutir þar að baki í formi stofnfjárbréfa og spyr hvort einhver lán hafi verið afgreidd líkt og gert var með Exeter Holding á sínum tíma. Hann segist vilja vera heiðarlegur í viðskiptum og einhverjir hafi kannski viljað að slíkir menn kæmumst ekki í stjórn hjá Byr. Sveinn segir að umboðið hafi náð yfir 400 milljón hluti. Munurinn á A og B lista var rúmir 300 milljónir og því skiptu atkvæðin sköpum í úrslitum kjörsins. Sveinn kallaði eftir upplýsingum um málið í gær hjá lögmanni Byrs en var neitað.Lögmaðurinn vildi heldur ekki senda honum neitunina skriflega. Sveinn hefur nú sent fjármálaeftirlitinu erindi. Hann segist ætla að fara dómstólaleiðina ef þaað er það sem þurfi. Fréttastofa óskaði eftir upplýsingum frá Kaupþingi í Lúxemborg í dag en var neitað. Ragnar Z. Guðjónsson, sparisjóðsstjóri Byrs, sagði í samtali við fréttastofu að eðlilegast sé fyrir Svein að taka málið fyrir á stjórnarfundi.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira