Fyrirtækin óttast meiri samdrátt landsframleiðslu en spáð er 29. apríl 2009 13:32
Reynist spá 500 fyrirtækja á landinu um samdrátt í veltu þeirra nærri lagi, er ástæða til að óttast að samdráttur í landsframleiðslu á þessu ári verði ennþá meiri en opinberar spár gera ráð fyrir. Þetta segir í nýrri könnun sem birt hefur verið á heimasíðu Samtaka atvinnulífsins (SA). Sem kunnugt er gera opinberar spár ráð fyrir tæplega 10% samdrætti landsframleiðslunnar í ár. Í heild spá fyrirtækin 9,8% lækkun á veltu milli ára, samkvæmt könnun SA. Ef gengið er út frá 12% meðalhækkun verðlags milli ára felst í þessu 19,5% samdráttur að raunvirði. Til samanburðar má geta þess að samkvæmt spá fjármálaráðuneytisins frá því í janúar er gert ráð fyrir tæplega 10% magnsamdrætti í landsframleiðslu á þessu ári. Þar er gengið út frá því að 1,6% raunvöxtur verði í samneyslu milli ári. „Er því ljóst að gera má ráð fyrir að samdráttur í umsvifum einkafyrirtækja milli ára verði ennþá meiri en sem nemur minnkum landsframleiðslu," segir í könnun SA. Samkvæmt svörum í könnuninni virðist einsýnt að hagnaður fyrirtækja sem hlutfall af veltu verði minni á árinu 2009 en 2008, en tæpur helmingur (49%) fyrirtækjanna telja að svo verði, á móti því sem um 32% búast við meiri hagnaði, en óbreytts hagnaðar er vænst hjá um 19% fyrirtækjanna. Ekki kemur fram mikill munur á þessu mati eftir atvinnugreinum, en lakastar horfur eru þó í sjávarútvegi, þar sem um 75% fyrirtækja búast við minni (50%) eða miklu minni (25%) hagnaði á árinu 2009. Í engri atvinnugrein koma fram skýr merki um aukinn hagnað á árinu 2009. Athygli vekur að þrátt fyrir veikt gengi krónunnar um þessar mundir ríkir lítil bjartsýni um þróun eftirspurnar eftir vöru og þjónustu á erlendum mörkuðum. Telja aðeins um 10% fyrirtækja í sjávarútvegi að eftirspurn á erlendum mörkuðum muni aukast á næstu sex mánuðum, um 40% búast við óbreyttri eftirspurn, en um 50% vænta samdráttar í eftirspurn.Í iðnaði og framleiðslu eru horfurnar skárri en þó ekki bjartar. Er þar ámóta stórt hlutfall fyrirtækja sem búast við aukinni erlendri eftirspurn (38%) og þeirra sem vænta samdráttar (40%), en röskur fimmtungur (22%) væntir ekki breytingar.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Sjá meira