LS Retail fékk viðurkenningu hjá Microsoft 20. júlí 2009 14:46
Íslenska upplýsingatæknifyrirtækið LS Retail var útnefnt „Microsoft Dynamics ISV of the year" í Vestur-Evrópu á Microsoft World Wide Partner ráðstefnunni í New Orleans í liðinni viku. Í tilkynningu segir að skammstöfunin ISV stendur fyrir Independent Software Vendor, þ.e. hugbúnaðarframleiðandi. LS Retail komst einnig annað árið í röð í hinn svokallaðann „Inner circle" Microsoft-samstarfsaðila í viðskiptalausnum, en einungis allra bestu samstarfsaðilar Microsoft á alþjóðavísu fá inngöngu í þann hóp eða um 1%. Í ræðu sinni við útnefninguna sagði Cesar Cernuda, einn af aðalstjórnendum Microsoft International, að LS Retail væri frábært dæmi um farsælan samstarfsaðila sem einbeitti sér að ákveðnum geira og hefði náð að bæta við sig yfir 200 viðskiptavinum í smásölugeiranum á síðastliðnu ári. Fyrirtækið hefði þróað lausnir fyrir smásölugeirann í Microsoft Dynamics NAV og Microsoft Dynamics AX og nú væru lausnir þess uppsettar í 132 löndum og þýddar á 33 tungumál. Meðal lykilatriða sem horft var til við útnefninguna voru framúrskarandi árangur í sölu, afbragðsgóð sérfræðiþekking á vörum og þjónustu Microsoft Dynamics og mikil ánægja viðskiptavina. „Í samstarfsneti Microsoft eru yfir eitt þúsund hugbúnaðarframleiðendur í Evrópu og um allan heim. LS Retail tilheyrir þessum hópi og við fögnum því mjög að Microsoft skuli velja fyrirtækið sem hugbúnaðarframleiðanda ársins. Viðurkenningin er árangur af þrotlausri vinnu og ríkri áherslu á vörugæði. Hluta af velgengni LS Retail má einnig rekja til öflugs samstarfsaðilanets Microsoft en fyrirtækið hefur aflað 216 nýrra viðskiptavina á síðustu tólf mánuðum," segir Gunnar Björn Gunnarsson, framkvæmdastjóri LS Retail. „Þessi árangur LS Retail er athygliverður sér í lagi ef litið er á að víðast hver er samdráttur í heiminum. Fyrirtækið skarar framúr á sínu sérsviði og ljóst að viðskiptavinir velja lausn þeirra sem svar við kröfu um hagræðingu í rekstri almennt. Verðlaunin eru eftirsóknarverð og árangurinn einungis á valdi hugbúnaðarframleiðenda sem eru á heimsmælikvarða. Það er sérstaklega ánægjulegt að íslenskt fyrirtæki skuli ná svona afburða árangri," segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira