Peningaþvottur í knattspyrnunni? Gunnar Örn Jónsson skrifar 1. júlí 2009 15:36 Frá leik í ensku knattspyrnunni. Leikmennirnir á myndinni tengjast ekki fréttinni. Mynd/Nordic photos Getty
Knattspyrna er langvinsælasta íþrótt í heimi. Nú er talin hætta á að glæpamenn nýti hana í öðrum tilgangi en þeim sem til er ætlast. Talið er að glæpamenn sem stunda peningaþvætti, kaupi knattspyrnulið, flytji leikmenn á milli liða og veðji á úrslit knattspyrnuleikja. Skýrsla alþjóðlegs aðgerðarhóps sem berst gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (Financial Action Task Force, FATF), inniheldur tvö óopinber tilvik í bresku knattspyrnunni þar sem skattskyldum tekjum virðist hafa verið skotið undan skatti. Í öðru tilfellinu var málið afhjúpað af leikmanni sem sagði frá því að greiðsla vegna undirskriftar leikmannasamnings hans (e. signing on fee) hafi verið talin til launa erlends umboðsaðila og því ekki gefin upp til skatts í Bretlandi. Breski knattspyrnumaðurinn, sem um ræðir, staðfesti að umboðsaðilinn hafi síðar greitt sér 300,000 pund eða rúmar 60 milljónir króna. Greiðslan var hins vegar afhent utan Bretlands og því fékk breska ríkið ekki krónu. Umfjöllunin heldur áfram: "Það er líklegt að félag leikmannsins sé með í ráðum þar sem það veit vel að slíkir samningar innihalda undirskriftargreiðslu til leikmanna og er talið að félagið hafi sparað sér 38 þúsund pund með þessum aðgerðum eða um 8 milljónir króna." Í síðara tilfellinu, er talið að knattspyrnulið hafi komist hjá skattgreiðslu með því að fá ljósmyndarétt á myndum af ákveðnum leikmanni félagsins. Málsatvik voru þau að erlendur leikmaður veitti knattspyrnufélagi sínu ákveðinn ljósmyndarétt af myndum af sér. Leikmaðurinn hafði áður flutt ljósmyndaréttinn til fyrirtækis sem hafði aðsetur í þekktu skattaskjóli. Leikmaðurinn fékk hlutafé í fyrirtækinu í staðinn fyrir réttinn. Á einhvern óskiljanlegan hátt fékk knattspyrnufélagið síðan þann rétt sem fyrirtækið virtist eiga og ætlaði knattspyrnufélagið að nýta réttinn til heimsútbreiðslu ljósmyndanna. Ólíkt öllum öðrum leikmönnum liðsins hafði þessi ákveðni leikmaður ekkert undirskriftarákvæði í samningi sínum, hann fékk engar bónusgreiðslur og engar greiðslur fyrir fjölda spilaðra leikja. Einnig er athyglisverð sú staðreynd að knattspyrnuliðið hafði ekki á nokkurn hátt nýtt sér þennan einkarétt sem félagið hafði af ljósmyndum af knattspyrnukappanum og ekki fengið álit sérfræðinga á því hvort samningurinn hefði eitthvert fjárhagslegt gildi fyrir félagið. "Peningaþvætti er mjög flókinn og alvarlegur glæpur, það er erfitt að koma í veg fyrir peningaþvætti en við erum að gera okkar besta til að koma í veg fyrir slíka ólögmæta starfsemi," segja bresk skattayfirvöld. "Afleiðingar rannskóknarinnar munu leiða til þess að ákveðnir aðilar verði lögsóttir og slík lögsókn sendir skýr skilaboð til allra þeirra sem hugleiða peningaþvott. Þeir sem það gera eru því að taka mikla áhættu," segja bresk skattayfirvöld.
Mest lesið Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Sjá meira