Viðskipti innlent

Eigendur 10% hlutafjár í Exista reyndust „die hards“

Alls tóku hluthafar, sem áttu samtals 7.370.176.028 hluti í Exista hf. eða sem nemur 11,5% hlutafjár í félaginu, tilboði BBR ehf í allt hlutafé Exista. Eigendur rúmlega 10% ákváðu því að hafna tilboði Bakkabræðra.

Í tilkynningu segir að eignarhlutur BBR ehf. nam 77,9% fyrir tilboðið en nemur nú að tilboðstíma liðnum 89,4% af heildarhlutafé Exista hf. Því hafa rúmlega 10% hafnað tilboðinu.

Þann 11. apríl 2009 gerði BBR ehf. hluthöfum í Exista hf. tilboð í hluti þeirra í félaginu og rann tilboðið út 8. maí 2009 kl. 16:00. Yfirtökutilboðið var gert í samræmi lög um verðbréfaviðskipti, þar sem kveðið er á um að hluthafar með a.m.k. 40% hlutafjár í félagi beri að gera öðrum hluthöfum tilboð um að kaupa hluti þeirra í félaginu.

BBR ehf., sem er í eigu Ágústs og Lýðs Guðmundssona, eignaðist yfir 40% í Exista í kjölfar hlutafjárhækkunar í desember 2008.

Hluthafar sem tóku tilboðinu fá greitt með reiðufé og fer greiðslan fram eigi síðar en þann 15. maí 2009 í samræmi við skilmála tilboðsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×