Spá óbreyttum stýrivöxtum næstu átta mánuði 10. ágúst 2009 11:31
Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni haldi stýrivöxtum óbreyttum í 12% næstu átta mánuði eða fram í apríl á næsta ári. Næsti vaxtaákvörðunardagur nefndarinnar er á fimmtudag. Í Morgunkorni greiningardeildarinnar segir að í fundargerð peningastefnunefndar frá síðustu vaxtaákvörðun komi skýrt fram að styrking krónu frá því gildi sem hún stóð í við síðustu vaxtaákvörðun væri forsenda vaxtalækkunar. Gengi krónunnar hafi lækkað um ríflega prósent frá vaxtaákvörðuninni í byrjun júlí og því sé ólíklegt að það muni hækka fram að vaxtaákvörðunardegi bankans. Þá segir í Morgunkorninu að mikið framboð sé af lausu fé á peningamarkaði og að markaðsvextir hafi verið að lækka. Markaðsvextir séu nú undir stýrivöxtum.Ráðgjöf AGS nýtur hljómgrunn innan nefndarinnar „Þrátt fyrir að nokkuð hafi miðað áfram í efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrisjóðsins og stjórnvalda frá síðustu vaxtaákvörðun í byrjun júlí sem ætti að öllu jöfnu að gefa tilefni til slökunar er útlit fyrir að þróun á gengi krónunnar og verðbólgu verði enn óviðunandi að mati peningastefnunefndarinnar þegar hún tekur ákvörðun sína í vikunni," segir í Morgunkorninu. Þar segir jafnframt að frestun á öðrum áfanga láns AGS ásamt lánum frá hinum Norðurlöndunum til að styrkja gjaldeyrissjóðsins sé líklegt til að draga úr vilja nefndarinnar að lækka stýrivexti bankans. „Þessu til viðbótar er ljóst að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn mælir ekki með frekari vaxtalækkunum en reynslan hefur sýnt að ráðgjöf sjóðsins nýtur töluverðs hljómgrunns innan peningastefnunefndar.“Spá 7,5% stýrivöxtum í árslok 2010 „Við reiknum með því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni halda stýrivöxtum Seðlabankans óbreyttir fram á 2. ársfjórðung næsta árs," segir í greiningardeildin. Fyrirhugað afnám gjaldeyrishafta ásamt væntanlegri þróun krónunnar mun að mati greiningardeildarinnar kalla á óbreytta stýrivexti fram að þeim tíma. Ekki sé þó hægt að útiloka að peningastefnunefnd bankans ákveði að hækka vexti bankans á þessum tíma. Að því tilskyldu að framvindan í áætlun AGS og stjórnvalda verði líkt og að er stefnt ættu að skapast forsendur fyrir hækkun krónunnar á næsta ári og að samhliða þeirri þróun verði slakað á aðhaldinu í peningamálum, að mati greiningardeildarinnar. „Er þetta ástæða þess að við spáum því að peningastefnunefnd bankans byrji að lækka vexti aftur í upphafi 2. ársfjórðungs á næsta ári og geri það í nokkrum þéttum en frekar varfærnum skrefum. Spáum við því að stýrivextir bankans verði komnir í 7,5% í lok næsta árs eða 4,5 prósentustigum lægri en þeir eru nú. Um mitt ár 2011 verða stýrivextir Seðlabankans komnir niður í 6% að okkar mati.“
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Sjá meira