Merkilega lítil fjölgun vanskila 21. október 2009 13:00 MYND/Heiða
Einstaklingum á vanskilaskrá hefur fjölgað um 25 prósent frá ársbyrjun 2008. Greining Íslandsbanka segir að miðað við þau erfiðu efnahagslegu skilyrði sem heimilin hafa búið við undanfarin misseri komi þetta ekki á óvart. „Frá því í ársbyrjun 2008 til 15. október í ár var fjölgunin 25% eða sem nemur um 4 þúsund einstaklingum. Um miðjan október voru tæplega 20 þúsund einstaklingar 18 ára og eldri skráðir á vanskilaskrá sem jafngildir um 6,7% af öllum fjárráða einstaklingum á landinu. Vanskil eru algengust meðal fólks á aldrinum 30-49 ára en um 9% þeirra voru í vanskilum um miðjan október," segir í Morgunkorni og er þar vitnað í úttekt Creditinfo. Merkilega lítil fjölgun Greiningardeildinni finnst fjölgunin þó merkilega lítil miðað við þær miklu efnahagslegu breytingar sem hér hafa orðið á undanförnum misserum. „Á síðustu 5 árum hefur hlutfall fjárráða einstaklinga á vanskilaskrá ekki farið niður fyrir 5% og þrátt fyrir það góðæri sem þá ríkti. Má ætla að hlutfallið nú væri hærra ef ekki væri fyrir þau úrræði sem heimilum hefur verið boðið til að mæta greiðsluerfiðleikum, þ.e.a.s. frystingu lána og greiðslujöfnun," segir Greiningardeildin. „Það er ekki síst af þessum sökum sem gjaldþrotum einstaklinga hefur fækkað um 55 tilfelli á milli ára, en á fyrstu níu mánuðum þessa árs hafa alls 78 einstaklingar orðið gjaldþrota samanborið við 133 á sama tímabili í fyrra. Þennan viðsnúning má þó einkum rekja til þess að í vor tóku í gildi sérstök lög skilgreind sem greiðsluaðlögun eða nauðasamningar í stað gjaldþrotameðferðar." Veruleg aukning fyrirsjáanleg „Miðað við óbreyttar aðstæður er enn veruleg aukning einstaklinga á vanskilaskrá fyrirsjáanleg samkvæmt áhættumati Creditinfo," segir ennfremur. „Reikna má með að yfir 7 þúsund einstaklingar munu bætast við á vanskilaskrá næsta árið. Samkvæmt sama áhættumati býr meirihluti íslenskra heimila enn við mjög gott lánshæfismat. Með fyrirhuguðum aðgerðum í lánamálum heimilanna og m.v. horfur í efnahagsmálum líkt og nú er verða flestir einstaklingar færir um að standa í skilum án þess að lenda í alvarlegum fjárhagserfiðleikum."
Mest lesið Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Viðskipti innlent Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Atvinnulíf Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Viðskipti innlent Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Viðskipti innlent Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Sjá meira