Flugakademía Keilis farin í útrás til Kína Óli Kristján Ármannsson skrifar 21. október 2009 06:00 DA-40 TDI kennsluflugvél Vel viðraði í kynningarflugi nýrra kennsluflugvéla Flugakademíu Keilis í gær. Hér má sjá fjögurra sæta DA-40 TDI vél, sem búin er nýjustu tækjum og með búk úr koltrefjum, sem eru sterkari en ál, með höfuðborgina í baksýn. Fréttablaðið/GVA
Skólamál Flugakademía Keilis hyggur á útrás með því að flytja inn flugnemendur frá Kína. Von er á fyrsta nemendahópnum í janúar næstkomandi. Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, segir skólann vel samkeppnishæfan við flugskóla í nágrannalöndunum. Skólinn sé ódýrari, hafi á að skipa mjög hæfum flugkennurum og sé vel tækjum búinn. Að sögn Hjálmars er að því stefnt að hingað til lands komi um 200 Kínverjar árlega til flugnáms hjá Keili. Ekki liggur hins vegar fyrir enn hversu margir nemendur verði í fyrsta hópnum sem hingað kemur. Þeir kunni að vera á milli 20 og 70 talsins. „En við erum með starfsmann í Kína sem vinnur þetta með okkur,“ segir Hjálmar, en þar í landi er verulegur skortur á menntuðum flugmönnum. Enn er verið að byggja við og efla flugnámið en nýverið bættust við þrjár kennsluflugvélar í fimm flugvéla flota Keilis. Allar eru vélarnar fjögurra manna, tvær DA-40 TDI eins hreyfils vélar og ein DA-42 NG (New Generation) tveggja hreyfla vél. Vélarnar eru tæknilega fullkomnar, með koltrefjabúk, sem er sterkari en hefðbundinn álbúkur. Það þýðir að farþegar vélarinnar eru betur varðir komi til óhappa. Þá er vél- og tækjabúnaður af allra nýjustu sort. Kári Kárason, skólastjóri flugakademíunnar, segir að meðal nýjunga sé til dæmis sjálfstýribúnaður sem nýnæmi sé að hægt sé að kenna á í svo litlum vélum. Búnaðurinn sé svipaður þeim sem notaður er í stórum farþegaþotum. Þá segir Kári öryggisatriði að vélarnar séu búnar stórum skjám, sem sýni meiri sjóndeildarhring en aðrar vélar. „En það þýðir að menn eiga betra með að halda áttum í erfiðum aðstæðum,“ segir hann. Þá eru vélarnar búnar dísilhreyflum sem eru minni að rúmmáli en aðrir, en skila þó sama afli. Vélarnar séu æði sparneytnari og noti í ofanálag þotueldsneyti, sem sé ódýrara en flugvélabensín. Hvað aukin umsvif í flugnáminu varðar segir Hjálmar svo stefnt að því að auka námsframboð tengt fluginu. Nýlega sé hafið flugfreyjunám, en í janúar eigi svo að hefja kennslu í flugvirkjun. Þá sé í pípunum að koma á flugrekstrarnámi.
Mest lesið Bíllinn þremur milljónum dýrari Viðskipti innlent Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Viðskipti innlent Ófremdarástand í bílastæðamálum aðhlátursefni Neytendur Lindex lokað á Íslandi Viðskipti innlent Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Viðskipti innlent Boðar aðgerðir til að koma reglu á „gjaldskyldufrumskóg“ Neytendur Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Viðskipti innlent Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Viðskipti innlent Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Viðskipti innlent Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Aðlaga lánamál ríkisins að breyttum aðstæðum „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ Fyrirtæki Elds með málmana sem Trump girnist á Grænlandi Sigla til loðnuleitar í fyrstu viku janúar Sjá meira