Segir hættu á að Íslandi verði sparkað út úr EES 20. apríl 2009 14:26
Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur segir á bloggsíðu sinni að línur eru nokkuð að skýrast í Evrópuumræðunni en það er þó einn flötur á málinu sem ekki hefur verið ræddur annars staðar en í pukurherbergjum stjórnarráðsins. Það er sú staðreynd, að eftir að neyðarlögin voru sett í sl. haust, uppfyllir Ísland ekki lengur skuldbindingar sínar á evrópska efnahagssvæðinu (EES). „Gjaldeyrishöftin eru þráðbeint brot á EES-samningnum og aðeins tímaspursmál hvenær Evrópusambandið fer að gera athugasemdir við þessa tilhögun. Fulltrúar ESB fylgjast grannt með þróun mála hér á landi en vegna neyðarástandsins hafa menn séð í gegnum fingur sér með þetta brot á samningnum," segir Eiríkur. Tekið skal fram hér að Fréttastofan hafði samband við ESA eftirlitsstofnum EFTA vegna haftanna fyrr í vetur og spurðist fyrir hvort einhverjar kvartanir hefðu borist stofnuninni, t.d. frá krónubréfaeigendum. Svo reyndist ekki vera. Ennfremur var spurt hve mikið langlundargerð ESA/ESB myndi sýna Íslandi í sambandi við höftin. Efnislega var svarið á þá leið að menn skildu vanda Íslands og sæju því í gegnum fingur sér með málið að svo stöddu. Það fylgdi hinsvegar með að langlundargeð ESA/ESB væri ekki endalaust. Eiríkur Bergmann segir að sjái menn ekki fram á að höftunum verði aflétt í bráð, er hætt við að Evrópusambandið neyðist til að segja EES-samningnum upp, einfaldlega vegna þess að við uppfyllum ekki lengur kröfur hans. Ef ekkert yrði að gert myndi gamli fríverslunarsamningurinn frá 1972 einfaldlega taka gildi á ný. „Sem myndi auðvitað hafa margvíslegar afleiðingar, til að mynda yrðu tollar væntanlega lagðir á ný á íslenskar sjávarafurðir inn á markaði ESB, vörur frá Íslandi fá þá ekki lengur sjálfkrafa vottun inn á Evrópumarkað með ómældu óhagræði, fjárfestingaréttur hyrfi og réttur Íslendinga til að starfa í Evrópu yrði afturkallaður. Enn fremur yrði lokað fyrir þátttöku Íslendinga í samstarfsáætlunum ESB á svið vísinda-, mennta- og menningarmála sem hafa fært gríðarlega þekkingu og fjármagn inn í íslenskt samfélag," segir Eiríkur Bergmann. „Þetta er vitaskuld óhugsandi niðurstaða og því þyrfti að semja um einhvers konar tvíhliða lausn ef Ísland neyðist til að hverfa út af innri markaðinum, kannski álíka og Sviss hefur gert. Vandinn við tvíhliða leiðina er þó sá, að fulltrúar ESB hafa hingað til ekki viljað ljá máls á slíku. - En mögulega breytir fjármálahrunið einhverju um það. Við stöndum allavega frammi fyrir þessum tveimur kostum; að halda í krónuna og höftin og fara út af Evrópska efnahagssvæðinu eða þá að sækja um aðild að ESB og EMU og taka upp evru í fyllingu tímans. Aðrir kostir eru ekki boði."
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira