Tæp 600 fyrirtæki í greiðsluþrot frá áramótum 8. maí 2009 08:38 MYND/BB
Fyrstu fjóra mánuði ársins hafa 580 íslensk fyrirtæki farið í greiðsluþrot, þar af hafa 319 fyrirtæki verið tekin til gjaldþrotaskipta. Flest fyrirtæki störfuðu í byggingariðnaði eða 151 fyrirtæki. Næstflest fyrirtæki störfuðu á sviði verslunar og þjónustu eða samtals 109 fyrirtæki. Þetta kemur fram í skýrslu sem Creditinfo hefur tekið saman um stöðuna. Þau fyrirtæki sem fara í greiðsluþrot án gjaldþrotaskipta eru oft fyrirtæki sem eiga ekki eignir fyrir skuldum, hafa fengið á sig árangurslaust fjárnám eða hafa ekki sinnt lögmætri fjárnámsboðun. Séu fyrirtæki komin í þann farveg er ljóst að greiðslugeta skulda er ekki fyrir hendi og teljast þau því komin í greiðsluþrot, skilgreind sem ógjaldfær fyrirtæki. Gera þarf ráð fyrir að upplýsingar um greiðsluþrot fyrirtækja í mars og apríl eigi enn eftir að berast Creditinfo um nokkur fyrirtæki. Þessar tölur eru í samræmi við fyrri spár Creditinfo um fjölda greiðsluþrota næstu mánaða en í dag stefna enn tæplega 3.300 fyrirtæki í greiðsluþrot miðað við óbreyttar aðstæður. Creditinfo vonast til að þessi tala lækki eitthvað á næstu vikum og mánuðum, t.d. með lækkandi stýrivöxtum, en þó skal hafa í huga að stýrivextir eru enn mjög háir og rekstrarskilyrði íslenskra fyrirtækja mjög erfið. Þá má gera ráð fyrir að lækkun stýrivaxta taki alltaf smá tíma að hafa jákvæð áhrif á atvinnulífið. Ef aðeins er horft til þeirra fyrirtækja sem tekin hafa verið til gjaldþrotaskipta frá áramótum má sjá að í apríl voru 59 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta. Þetta er 12 fyrirtækjum fleiri en í sama mánuði í fyrra en þá voru þau 47 talsins. Hér þarf að gera ráð fyrir að í páskamánuði eru gjaldþrotaskiptamál almennt færri en í öðrum mánuðum. Ef fjöldi gjaldþrota fyrirtækja tímabilið janúar - apríl 2009 er borin saman við janúar - apríl 2008 má sjá að heildarfjöldi gjaldþrota fyrirtækja er 42,4% meiri nú en á sama tímabili árið 2008. Af 319 gjaldþrotum í ár hafa 78 byggingarfyrirtæki verið tekin til gjaldþrotaskipta og 61 fyrirtæki í verslun og þjónustu.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Allir Bónus vanilludropar innkallaðir Neytendur Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira