Viðskipti innlent

Hildur ráðin nýr stjóri hjá Sævari Karli

Hildur Erla Björgvinsdóttir hefur verið ráðin til starfa sem framkvæmdastjóri Vigfúsar Guðbrandssonar og Co. ehf. sem rekur verslunina Sævar Karl í Bankastræti.

Í tilkynningu segir að Hildur starfaði áður sem sölu- og þjónustustjóri hjá Nova ehf. og bar þar ábyrgð á uppbyggingu verslana og þjónustuvers. Þegar fyrirtækið hóf rekstur bar Hildur ábyrgð á sölu og þjónustu til einstaklinga ásamt daglegum rekstri verslana og þjónustuvers.

Áður en Hildur hóf störf hjá Nova starfaði hún sem starfsmannastjóri í Högum, fyrst á Sérvörusviði Haga og síðan í Hagkaupum. Fyrir þann tíma var Hildur stjórnunarráðgjafi hjá IMG. Hildur bjó um árabil í Bandaríkjunum og starfaði þar með háskólanámi sem verslunarstjóri hjá Old Navy.

Hildur er með B.A. gráðu í sálfræði frá Florida International University og M.Sc. gráðu í stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun frá sama háskóla.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×