Fjórðungi sagt upp hjá Teris 28. apríl 2009 04:30 Upplýsingatæknifyrirtækið Teris hefur sagt upp fjórðungi starfsmanna. Teris missti þrjá stóra viðskiptavini.
Upplýsingatæknifyrirtækið Teris hefur sagt upp 34 starfsmönnum, eða um fjórðungi starfsmanna sinna. Uppsagnirnar koma niður á öllum þáttum starfseminnar og hafa sumir starfsmannanna unnið lengi hjá fyrirtækinu. Allir starfsmennirnir hafa þegar hætt störfum. Teris sinnir upplýsingatækniþjónustu og sérhæfir sig í þjónustu við fjármálafyrirtæki. Sæmundur Sæmundsson, framkvæmdastjóri Teris, segir að Teris hafi með uppsögnunum nú verið að bregðast við hremmingum á markaðnum. Allir viðskiptavinir fyrirtækisins séu að draga saman seglin og skera niður kostnað, „Við höfum reyndar verið í aðhaldsaðgerðum frá því í mars í fyrra. Við sögðum upp fimmtán starfsmönnum í október þegar bankahrunið varð og fimm starfsmönnum í september í hugbúnaðarfyrirtæki sem við áttum," segir Sæmundur. Allir sparisjóðir í landinu eru viðskiptavinir Teris og sér fyrirtækið um alla upplýsingatækniþjónustu fyrir þá. SPRON og Sparisjóðabankinn féllu í mars og tveimur vikum síðar yfirtók nýja Kaupþing Sparisjóð Mýrasýslu. Við misstum þrjá stóra viðskiptavini á tveimur vikum. Óhjákvæmilegt var að bregðast við því og því miður urðum við að segja upp svona stórum hópi," segir hann. Starfsmennirnir eru flestir með þriggja mánaða uppsagnarfrest en nokkrir eru með sex mánaða uppsagnarfrest. Þeir hafa allir hætt störfum. „Við urðum að ganga svo langt að segja upp fólki sem er með mjög mikla starfsreynslu," segir hann. Um 140 starfsmenn voru hjá Teris áður en uppsagnir komu til framkvæmda. - ghs
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira