HB Grandi á sjávarútvegssýningu í Brussel 28. apríl 2009 11:46
Í morgun voru sjávarútvegssýningarnar European Seafood Exposition (ESE) og Seafood Processing Europe (SPE) í Brussel í Belgíu opnaðar formlega. HB Grandi hefur tekið þátt í ESE-sýningunni frá árinu 2005 og hefur þátttakan þar verið stór liður í starfi félagsins við að taka markaðssetningu sinna afurða i eigin hendur. Í frétt um málið á heimasíðu HB Granda segir að sýningarbás HB Granda er í sýningarhöll 6 og er hann númer 839-1. Meðal þeirra góðu gesta, sem heimsóttu sýningarbásinn í morgun, voru Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel, og Guðríður Margrét Kristjánsdóttir, ráðgjafi í sjávarútvegsmálum við sendiráðið. Sjávarútvegssýningarnar í Brussel verða næstu þrjá dagana í sviðsljósi fjölmiðla en búist er við því að gestir frá meira en 150 þjóðlöndum sæki sýningarnar heim. Sýningarnar eru jafnan vettvangur alls hins besta og framsæknasta sem sjávarútvegsfyrirtæki heimsins og fyrirtækja sem þjónusta sjávarútveginn hafa upp á að bjóða. Í ár taka rúmlega 700 fyrirtæki þátt í ESE-sýningunni og sýnendur á SPE sýningunni, sem er vettvangur véla- og tækjaframleiðenda, eru rúmlega 200 talsins frá 22 löndum. ,,Sjávarútvegssýningin í Brussel er mikilvægasta sýning sinnar tegundar og sú langstærsta sem haldin er í heiminum í dag. Reynsla okkar af þátttöku í ESE-sýningunni er mjög góð og við verðum nú með fimmta árið í röð," segir Svavar Svavarsson, markaðsstjóri HB Granda, en til marks um áhersluna sem félagið leggur á þessa sýningu má nefna að alls eru 12 starfsmenn HB Granda staddir í Brussel og munu þeir nota tækifærið til að ræða við kaupendur á sjávarfangi næstu dagana, afla nýrra viðskiptasambanda og treysta samstarfið við eldri viðskiptavini. ,,Við höfum áður stofnað til nýrra viðskiptasambanda í Brussel eða í kjölfar sýninganna þar og væntum þess að svo verði einnig að þessu sinni," segir Svavar Svavarsson.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira