Velheppnað útboð á íbúða- og ríkisbréfum í morgun 27. október 2009 12:02
Seðlabankinn hélt í morgun útboð á þeim íbúða- og ríkisbréfum sem lögð höfðu verið inn í bankann til tryggingar verðbréfalánum fyrir hrun og ríkissjóður yfirtók í kjölfarið. Í boði voru 4,3 milljarðar kr. í HFF24, 3,2 milljarðar kr. í HFF34, 3,8 milljarðar kr. í RIKB13 og 3,12 milljarðar kr. í RIKB19. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að tilkynning um útboðið var send út rétt fyrir lokun markaða í gær og myndaðist nokkur söluþrýstingur á markaði í kjölfarið. Þess má geta að um helgina breyttu flestar Evrópuþjóðir frá sumartíma til vetrartíma, og var opnunartími Kauphallarinnar því framlengdur til kl. 16:30 í stað 15:30 frá og með gærdeginum. Þrátt fyrir söluþrýsting í lok gærdags heppnaðist útboðið ágætlega. Mestur reyndist áhuginn á HFF34. Tilboð í flokkinn voru 12,2 milljarðar kr. í heildina og voru allir 3,2 milljarðarnir seldir á 4,03% ávöxtunarkröfu. Þá bárust tilboð að fjárhæð 2,8 milljarða kr. í HFF24-bréfin, og var tilboðum fyrir tæplega 1,8 milljarð kr. tekið á 4,11% ávöxtunarkröfu. Í RIKB13 bárust tilboð að fjárhæð tæplega 3,9 milljarða kr. en alls voru seld bréf í þeim flokki fyrir 1,7 milljarða kr. á 7,3% ávöxtunarkröfu. Loks bárust tilboð að fjárhæð tæplega 4,2 milljarða kr. í RIKB19-flokkinn, en tilboðum var tekið fyrir nærri 2,6 milljarða kr. á 8% ávöxtunarkröfu. Eftir útboð morgunsins standa eftir í eigu ríkissjóðs HFF24-bréf fyrir 2,5 milljarða kr. að nafnverði, RIKB13-bréf fyrir 2,1 milljarða kr. að nafnverði og RIKB19-bréf fyrir u.þ.b. 550 milljónir kr. að nafnverði. Framboð ríkistryggðra skuldabréfa úr þessari áttinni er því að langmestu leyti komið fram og má leiða að því líkur að Seðlabankinn muni leitast við að sæta lagi þegar markaðsaðstæður eru með hagstæðasta móti til að losa ríkissjóð við það sem eftir stendur af þessum bréfum.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira