Sports Direct ætlar í mál við Kaupþing í Bretlandi 27. október 2009 12:19
Íþróttavörukeðjan Sports Direct ætlar í mál við stjórnendur Singer & Friedlander banka Kaupþings í Bretlandi. Málið er höfðað vegna yfirtöku á eignarhlutum Sports Direct í verslunarkeðjunum Blacks Leisure og JD Sports Fashion. Eins og fram kom í frétt hér á síðunni snemma í morgun báðu Ernst & Young, skiptastjórar Kaupthing Singer & Friedlander, dómstól um að úrskurða um að eignarhlutirnir væru ekki lengur eign Sports Direct. Í gærkvöldi tilkynnti JD Sports Fashion um að Sports Direct færi ekki lengur með 11% eignarhlut í keðjunni. Og fyrir hádegið kom tilkynning frá Blacks Leisure um að Sports Direct færi ekki lengur með 29% hlut í keðjunni. Í frétt á vefsíðu Retailweek um málið segir að Sports Direct hafi þegar afskrifað þessa eignarhluti úr bókum sínum en verðmatið á þeim var 53 milljón pund eða um 11 milljarðar kr. Í yfirlýsingu frá Sports Direct í morgun segir hinsvegar..."við staðfestum að við munum áfram verjast aðgerðum Kaupthing Singer & Friedlander og stjórnenda bankans Ernst & Young til að taka yfir fjárfestingar Sports Dircet, þar á meðal þær í Blacks Leisure og JD Sports" Ennfremur segir í yfirlýsingunni að Sports Dircet ætli í mál við Kaupthing Singer & Friedlander og Ernst & Young til þess að verja lagaleg réttindi sín.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira