FÍS gagnrýnir frekari hækkanir á tryggingargjaldi 27. október 2009 13:14
Félag íslenskra stórkaupmanna (FÍS)segir að frekari hækkun tryggingagjalds í stað orkuskatta muni bitna harkalega á verslun og þjónustu og hefur áhrif á atvinnustig. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem FÍS hefur sent frá sér. Í viðræðum SA og ASÍ um stöðugleikasáttmála hefur verið rædd sú hugmynd að hækka beri tryggingagjald á öll atvinnufyrirtæki í stað fyrirhugaðra orkuskatta. Í yfirlýsingu FÍS segir að ástæða sé til að árétta að frekari hækkun tryggingagjalds er skattlagning sem leggst þyngra á verslunar og þjónustufyrirtæki en annars konar fyrirtæki í landinu. Áætla má að a.m.k. 60% starfa í einkageiranum séu í verslunar og þjónustugreinum og því augljóst að frekari hækkun tryggingagjalds muni bitna hart á þessum geira. Ljóst er að hugmyndir stjórnvalda um orkuskatta voru ófullburða þegar þær komu fram og hafa stjórnvöld réttilega verið gagnrýnd harðlega fyrir þannig vinnubrögð. FÍS telur mikilvægt að tryggja áframhaldandi áhuga erlendra aðila á að fjárfesta hér á landi. Það eitt gefur þó ekki tilefni til að leggja ennþá meiri byrðar á verslun og þjónustu í landinu. Mikilvægt er að aðrar leiðir séu farnar til að brúa fjárlagahallann. FÍS telur mjög mikilvægt að standa vörð um stöðugleika á vinnumarkaði. Með það að leiðarljósi er félagið tilbúið að virða þegar gerða kjarasamninga - þrátt fyrir að fyrirheit stjórnvalda hafi í ýmsu brugðist. Hugmyndir um aukna skattbyrði á greinina eða á neytendur kunna þó að breyta þeirri afstöðu.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira