ISAL með bestan árangur álvera heimsins í minnkun flúors 27. október 2009 09:56
Staðfest hefur verið af Alþjóðasamtökum álframleiðenda (IAI) að ISAL náði bestum árangri allra álvera heims við að lágmarka losun flúorkolefna árið 2008. Í tilkynningu segir að flúorkolefni eru sterkar gróðurhúsalofttegundir og stór hluti af heildarlosun margra álvera. Losun ISAL á liðnu ári, mæld í CO2-ígildum, nam aðeins 23 kg á hvert framleitt tonn af áli en meðalálver losar um 700 kg. Með því að skara fram úr á þessu sviði losar álverið í Straumsvík 130 þúsund tonnum minna af CO2-ígildum á ári en ef losun þess væri í meðallagi. Frá árinu 1990 hefur ISAL minnkað losun CO2-ígilda á hvert framleitt tonn af áli um 75%. Sá árangur skýrist fyrst og fremst af samdrætti í losun flúorkolefna. "Þessi árangur er mjög ánægjulegur og í góðu samræmi við þá stefnu okkar að vera í fremstu röð í allri okkar starfsemi, hafa stöðugar umbætur að leiðarljósi og starfa ávallt í sátt við umhverfi og samfélag," segir Rannveig Rist forstjóri Alcan á Íslandi hf. "Árangurinn kemur hins vegar ekki af sjálfu sér heldur er hann afleiðing af framúrskarandi þekkingu og þrotlausum metnaði starfsfólks okkar. Til að draga úr losun flúorkolefna þarf að lágmarka tíðni og tímalengd svokallaðra spennurisa í kerum og í því sambandi hefur hæfni og metnaður starfsfólksins skipt sköpum."
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Sjá meira