Var boðið að verða bankastjóri Landsbankans og Glitnis 4. október 2009 13:00 Ármann Þorvaldsson
Ármanni Þorvaldssyni fyrrum forstjóra Singer & Friedlander var bæði boðið að vera bankastjóri Landsbankans og Glitnis. Þetta kemur fram í bók Ármanns um íslenska viðskiptalífið sem kemur út í þessari viku. Ármann segir að þetta hefði auðvitað þýtt meir peninga og meiri vegsemd fyrir sig. „Ég er enginn Móðir Theresa fjármálheimsins en ég hafnaði báðum tilboðunum," segir Ármann í bókinni. Hann segir ennfremur að fyrir flesta þá sem höfðu byggt upp Kaupþing, var hugmyndin að fara til annarra banka eins og fyrir Jóhannes í Bónusi að fara að vinna í Krónunni. „Ég fékk auðvitað góð laun og mér fannst mikilvægt að vinna með fólki sem var nánast eins og fjölskylda mín. Ég hafði einu sinni gert árangurslausa tilraun til að fara og hafði ekki í hyggu að endurtaka hana." Val á vínum olli nú heilabrotum Ármann talar opinskátt um lífernið sem fylgdi því að vera farsæll bankamaður á þessum tímum. Meðal annars segir hann að fyrir hina nýríku íslendinga hafi velgengnin skapað ný og áður óþekkt vandamál. Upp komu ýmis vandamál tengd starfsfólkinu. „Bílstjórinn var latur, heimilshjálpin þreif illa og barnfóstran ætlað aldrei að vakna á morgnana. Börnin kvörtuðu undan því að vera alltaf að ferðast til staða eins og Courchevel, St. Tropez og Dubai og vildu frekar vera heima og fara út að hjóla. Val á vínum olli nú heilabrotum. Nokkrum árum áður drukku allir gin og tónik. Nú þótti hallærislegt að drekka rauðvín sem var yngra en maður sjálfur." Ódýra velska útgáfan Ármann segir að fáir á Íslandi hefðu vitað hver hann væri ef ekki væri fyrir tvær áramótaveislur sem hann hélt í London árin 2006 og 2007. Ármann var á þessum tíma þekktur fyrir að syngja lagið „Delilah" sem Tom Jones söng eftirminnilega á sínum tíma. Í gegnum tíðina hafði hann sungið það í partýum og veiðikofum, en einnig fyrir 1.500 manns á snekkju með mörgum af ríkustu mönnum Bretlands. Í umræddri veislu gekk Ármann upp á svið þar sem hljómsveit hafði komið sér fyrir, tók í hljóðnemann og sagði: „Í staðinn fyrir ódýru íslensku útgáfuna skulum við gera þetta í alvöru og fá besta söngvara heims!" Í kjölfarið mætti sjálfur Tom Jones á svið. Hann segir síðan að margir hafi haldið að um nokkuð góða eftirhermu hefði verið að ræða. Breskur vinur Ármanns sagði meðal annars síðar meir að hann hefði ekki áttað sig á því að þetta væri sjálfur Tom Jones fyrr en eftir fimm lög. „Ég hitti meistarann baksviðs fyrir uppákomuna og þegar ég var að útskýra með hvaða orðum ég myndi kynna hann, hrökk upp úr mér „Í staðinn fyrir ódýru íslensku útgáfuna, hér er ódýra velska útgáfan!" Steinrunninn andlitin á fylgdarliði hans gáfu til kynna að þarna hefði ég gengið of langt."
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira