Sameiningar nánast óhjákvæmilegar 9. júlí 2009 05:15 Gylfi Magnússon
Margar leiðir til sameiningar fjármálastofnana hafa verið skoðaðar í viðskiptaráðuneytinu, en engin áform eru um sameiningu tveggja af viðskiptabönkunum þremur, segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra. Ekki er hægt að útiloka að einhverjar af smærri fjármálastofnunum landsins verði sameinaðar viðskiptabönkunum, en engin ákvörðun hefur verið tekin um slíkt, segir Gylfi. Þó sé nánast óhjákvæmilegt að einhverjar sameiningar verði hjá sparisjóðunum. „Það hefur verið lögð mikil vinna í að skoða framtíðarskipulag fjármálakerfisins […] mikil vinna hefur verið lögð í að teikna upp ýmsa möguleika," segir Gylfi. Hann segist enn ekki hafa tekið afstöðu til þess hvaða fyrirkomulag hann telji heppilegast fyrir íslenskan bankamarkað. „Sameining tveggja af stóru bönkunum er mjög fjarlægur möguleiki af ýmsum ástæðum," segir Gylfi. Erfitt sé að réttlæta að búa til banka með yfir 50 prósenta markaðshlutdeild út frá samkeppnissjónarmiðum. Þá myndi slík sameining einnig hafa afar neikvæð áhrif á millibankamarkað og fjármálastöðugleikann í landinu. „Ég vil sjá fjármálakerfi þar sem sparisjóðirnir gegna talsverðu hlutverki, þá sérstaklega í þjónustu við einstaklinga og smærri fyrirtæki. Þeir myndu þá fyrst og fremst hafa rætur utan höfuðborgarsvæðisins með nánum tengslum við heimabyggðina," segir Gylfi. Hann segir slíkt afturhvarf til upprunalegra gilda sparisjóðanna jákvætt út frá samkeppnissjónarmiðum, enda sparisjóðirnir valkostir við stóru viðskiptabankana fyrir viðskiptavini. Sjóðirnir verði þó að vera sæmilega stórir og lífvænlegir, svo taka þurfi til í kerfinu til að þessi framtíðarsýn sé raunhæf.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira